mobile navigation trigger mobile search trigger
14.09.2017

183. fundur hafnarstjónar

Hafnarstjórn - 183. fundur

haldinn í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði, 12. september 2017 og hófst hann kl. 16:00 

Fundinn sátu:

Sævar Guðjónsson Formaður, Pálína Margeirsdóttir Varaformaður, Ævar Ármannsson Aðalmaður, Einar Már Sigurðarson Varamaður, Árni Þórhallur Helgason Varamaður og Steinþór Pétursson Embættismaður.

Fundargerð ritaði: Steinþór Pétursson

Dagskrá:

1.

1701008 - Fundargerðir Hafnasamband Íslands 2017

Fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 396 dags. 25. ágúst 2017 lögð fram til kynningar

2.

1709036 - Reglugerð um slysavarnir og öryggisbúnað í höfnum

Erindi frá Hafnasambandi Íslands dags. 6. september 2017 þar sem send er til upplýsinga ný reglugerð um slysavarnir og öryggisbúnað í höfnum.

3.

1708110 - Hafnarfundur 2017

Erindi frá Hafnasambandi Íslands dags. 22. ágúst 2017 þar sem boðað er til Hafnafundar 2017 fimmtudaginn 21. september nk. Hafnarstjórn samþykkir að senda fulltrúa á hafnafundinn.

4.

1708158 - Umsókn um undanþágu frá lóðsskyldu fyrir Valerii Filimonov skipstjóra á Samskip Hoffell

Erindi frá Samskipum dags. 29. ágúst 2017 þar sem sótt eru um undanþágu frá hafnsöguskyldu að og frá Mjóeyrarhöfn fyrir Valerii Filimonov skipstjóra á Samskip Hoffelli. Hafnarstjórn staðfestir undanþágu frá hafnsögu fyrir Valerii Filimonov skipstjóra á Samskip Hoffell.

5.

1708109 - Fyrirspurn um Stöðvarfjarðarhöfn

Fyrirspurn frá Bjarna Stefáni Vilhjálmssyni dags. 21. ágúst þar sem spurt er hvort fyrirhugað sé að stækka smábátahöfnina á Stöðvarfirði, en smæð hennar hindri orðið aukningu við höfnina. Hafnarstjórn mun taka stækkun smábátahafnarinnar fyrir við vinnu í áætlunargerði hafnarsjóðs fyrir árin 2018 til 2021. Framkvæmdastjóra falið að svara bréfritara.

6.

1706013 - Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 2018 ásamt langtímaáætlun

Framhald vinnu við undirbúning að fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2018 ásamt langtímaáætlun.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:20