Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 185. fundur
haldinn í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði, 11. september 2017 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu Jón Björn Hákonarson formaður, Svanhvít Yngvadóttir aðalmaður, Einar Már Sigurðarson aðalmaður, Ragnar Sigurðsson varaformaður, Kristjana Guðmundsdóttir aðalmaður, Valur Sveinsson embættismaður, Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri, Marinó Stefánsson embættismaður, Anna Berg Samúelsdóttir embættismaður, Þorsteinn Sigurjónsson embættismaður og Ragna Dagbjört Davíðsdóttir embættismaður.
Fundargerð ritaði Marinó Stefánsson.
Dagskrá:
1. |
1609180 - Aðgerðaáætlun um aukna úrgangsflokkun |
|
Lögð fram aðgerðaráætlun um aukna úrgangsflokkun og úrgangsforvarnir dags. september 2017. Verkefnastjóri umhverfismála kynnti aðgerðaáætlunina. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti aðgerðaráætlunina. |
||
2. |
1612066 - Tjaldsvæði Fjarðabyggð 2017 |
|
Samningur um tjaldsvæði í Fjarðabyggð við Landamerki ehf er útrunninn 30. september næstkomandi. |
||
3. |
1709053 - Hleðslustöð-bílastæði |
|
Lögð fram beiðni Jóns Sigurðssonar fh. Orku náttúrunnar dags. 6.september síðastliðinn þar sem óskað er eftir heimild til uppsetningar á hleðslustöðvum á Stöðvarfirði. Óskað er eftir þrem bílastæðum á bílaplani við Steinasafn Petru. Settar yrðu upp tvær hleðslustöðvar fyrir rafbíla, önnur verður hraðhlesðlustöð DC og hin verður AC hleðsla 32A. |
||
4. |
1612131 - Útilistaverk - Odee |
|
Þar sem menningar- og safnanefnd vinnur nú að stefnumótun um útilistaverk hjá sveitarfélaginu þá mun eigna- skipulags- og umhverfisnefnd bíða niðurstöðu þeirra vinnu. |
||
5. |
1708088 - Fjölskyldu-og útivistarsvæði á Fáskrúðsfirði |
|
Lögð fram fyrsta tillaga starfshóps að fyrirkomulagi fjölskylduvinar í Skrúðgarðinum á Fáskrúðsfirði. Frekari hönnun svæðisins verður unnin áfram með nákvæmari útfærslu tækja, stíga, lýsingar og gróðurs. |
||
6. |
1709048 - 740 Hafnarbraut 17 - byggingarleyfi - rífa hús |
|
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Nestaks ehf, byggingarverktaka, dagsett 7. september 2017, þar sem sótt er um leyfi til að rífa húsið sem stendur á lóðinni að Hafnarbraut 17 á Norðfirði. Byggingin er víkjandi samkvæmt deiliskipulagi svæðisins. |
||
7. |
1709020 - Fjárhagsheimildir í fjárhagsáætlun 2018 - Eigna,skipulags og umhverfisnefnd |
|
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd fór yfir fjárhagsheimildir nefndarinnar og felur sviðstjóra áframhaldandi vinnu í takt við áherslu nefndarinnar. |
||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00.