186. fundur hafnarstjórnar
Hafnarstjórn - 186. fundur
haldinn í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði, 24. október 2017 og hófst hann kl. 16:30
Fundinn sátu:
Sævar Guðjónsson Formaður, Pálína Margeirsdóttir Varaformaður, Eydís Ásbjörnsdóttir Aðalmaður, Kristín Ágústsdóttir Aðalmaður, Einar Már Sigurðarson Varamaður og Steinþór Pétursson Embættismaður.
Fundargerð ritaði: Steinþór Pétursson
Dagskrá:
1. |
1710093 - Aðalfundarboð 2016 - Ársreikningur 2015 |
|
Aðalfundarboð Fiskmarkaðar Austurlands þann 26. október 2017 á Eskifirði. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að vera fulltrúi hafnarsjóðs Fjarðabyggðar á fundinum og jafnframt tilkynna tillögu hafnarstjórnar um nýjan aðalmann og varamann í stjórn Fiskmarkaðarins en það eru aðalmaður verður framkvæmdastjóri Fjarðabyggðarhafna og til vara verður formaður hafnarstjórnar eins og áður. |
||
2. |
1710070 - Umsókn um undanþágu frá lóðsskyldu fyrir Jarle Sanden og Kjell Gunnar skipum Green |
|
Erindi frá Nesskip dags. 10. október 2917 þar sem óskað er eftir undanþágu frá lóðsskyldu að og frá höfnum Fjarðabyggðar fyrir Jarle Sanden og Kjell Gunnar, skipstjórana á Green skipunum. Hafnarstjórn hafnar beiðninni þar sem ekki er um reglubundnar siglingar að ræða. |
||
3. |
1709077 - Allt að 21.000 tonna framleiðsla á laxi í Berufirði og Fáskrúðsfirði - beiðni um umsögn |
|
Erindi frá Skipulagsstofnun dags. 28. september þar sem óskað er eftir umsögn um frummatsskýrslu fyrir 21.000 tonna eldi í Berufirði og Fáskrúðsfirði. Fyrir fundinum lá vinnuskjal sem farið var yfir og gerðar lagfæringar. Hafnarstjórn vísar skjalinu til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og bæjarráðs til umfjöllunar. |
||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00