Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 187. fundur
haldinn í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði, 9. október 2017 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Jón Björn Hákonarson formaður, Svanhvít Yngvadóttir aðalmaður, Ragnar Sigurðsson varaformaður, Kristjana Guðmundsdóttir aðalmaður, Kamma Dögg Gísladóttir varamaður, Valur Sveinsson embættismaður, Heilbrigðiseftirlit Austurlands áheyrnarfulltrúi, Marinó Stefánsson embættismaður og Þorsteinn Sigurjónsson embættismaður, Anna Berg Samúelsdóttir embættismaður.
Fundargerð ritaði Marinó Stefánsson.
Dagskrá:
1. |
1611104 - Húsnæðisstefna Fjarðabyggðar - TRÚNAÐARMÁL |
|
Trúnaðarmál. |
||
Þennan fundarlið sat Helga Hreinsdóttir frá heilbrigðisnefnd Austurlands |
||
2. |
1709177 - Gæðahandbók Vatnsveitu |
|
Drög að Handbók innra eftirlits Vatnsveitu á Eskifirði voru kynnt. Samþykkt var áætlun sviðsstjóra veitusviðs um kynningu og innleiðingu á handbókinni. |
||
3. |
1411143 - Uppbygging ljósleiðaraneta í Fjarðabyggð og ríkisaðstoðarreglur EES |
|
Drög að gjaldskrá fyrir ljósleiðaratengingar í dreifbýli Fjarðabyggðar í verkefninu Ísland ljóstengt vísað til kynningar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd. |
||
4. |
1701232 - Refa- og minkaveiði fyrirkomulag 2017 |
|
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur umhverfisstjóra að skoða hvort hægt sé að gera veiðar á mink skilvirkari án aukins kostnaðar. |
||
5. |
1708123 - 740 Framkvæmdaleyfi - Lagfæring vegar frá Viðfirði að Merkihrygg |
|
Lögð fram framkvæmdarleyfisumsókn Barðsness við Norðfjörð ehf, dagsett 21. júlí 2017, vegna lagfæringar á vegslóða frá Viðfirði út fyrir Merkihrygg á um 3,5 km. kafla að landamerkjum Stuðla. Umsóknin var kynnt á 182. fundi og afgreiðslu frestað á 184. fundi nefndarinnar. Samþykki landeiganda Viðfjarðar vegna vegagerðarinnar liggur fyrir ásamt jákvæðri umsögn Umhverfisstofnunar og Minjastofnunar Íslands. |
||
6. |
1612066 - Tjaldsvæði Fjarðabyggð 2017 |
|
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs og umhverfisstjóra að vinna að tillögum á rekstrarfyrirkomulagi fyrir tjaldsvæðin, útboðsgerð og leggja fram þau gögn á næsta fundi nefndarinnar þann 23. október nk. |
||
7. |
1710004 - 750 Álfabrekka 6 byggingarleyfi |
|
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Ívars Guðjóns Jóhannessonar, dagsett 1. október 2017, þar sem sótt er um leyfi til að stækka bílskúr við íbúðarhús hans að Álfabrekku 6 á Fáskrúðsfirði um 6,37 m til austurs eða um 31,9 m2. |
||
8. |
1710003 - 730 Stekkjarbrekka 6 byggingarleyfi |
|
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Karls Heimis Búasonar, dagsett 30. september 2017, þar sem sótt er um að útgrafinn hluti kjallara húss hans að Stekkjarbrekku 6 á Reyðarfirði verði skráður. |
||
9. |
1704081 - 750 Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027,breyting - grjótnáma kappeyri |
|
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027, grjótnáma við kappeyri til auglýsingar. Tillagan er sett fram á uppdrætti og greinargerð dagsett 18. ágúst 2017. Tillagan verði auglýst í samræmi við 31. gr. skipulagslaga. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarstjórnar. |
||
10. |
1710013 - 750 Hafnargata 23 byggingarleyfi - niðurrif húss |
|
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Loðnuvinnslunnar hf , dagsett 3. október 2017, þar sem sótt er um leyfi til að rífa vestari hluta húss fyrirtækisins að Hafnargötu 23 á Fáskrúðsfirði. |
||
11. |
1710033 - Suðurfirðir - Framkvæmdaleyfi, lagning ljósleiðara |
|
Lögð fram framkvæmdarleyfisumsókn Fjarðabyggðar í samstarfi við Orkufjarskipti, dagsett 6. október 2017, vegna lagningar ljósleiðara frá Stöð í Stöðvarfirði að Áreyjum í Reyðarfirði. Fyrirhuguð lagnaleið liggur frá Óseyri með Suðurfjarðarvegi um Fáskrúðsfjarðargöng til Áreyja í Reyðarfirði. Samþykki landeigenda liggur fyrir ásamt jákvæðum umsögnum Vegagerðar, Fiskistofu, Veiðifélags Dalsár og Minjastofnunnar Íslands. Fornleifaskráning hefur verið gerð fyrir lagnaleiðina. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist í október 2017 og klárist fyrir áramót. Gert er ráð fyrir tengingu 14 lögbýla. |
||
12. |
1707040 - 735 Kirkjustígur 1.b - Byggingarleyfi - breyting inni |
|
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Önnu Bjargar Sigurðardóttur, dagsett 9. júlí 2017, þar sem sótt er um leyfi til að breyta staðsetningu á eldhúsi í húsi hennar að Kirkjustíg 1b á Eskifirði. |
||
13. |
1709161 - 750 Dalsá - Framkvæmdaleyfi, efnistaka |
|
Lögð fram framkvæmdaleyfisumsókn Loðnuvinnslunnar hf, dagsett 20. september 2017, þar sem óskað er eftir leyfi til að taka 4000 m3 af efni úr Dalsá í Fáskrúðsfirði. Samþykki landeiganda, Hafrannsóknarstofnunar, Fiskistofu og Veiðifélags Dalsár liggur fyrir. |
||
14. |
1709189 - 740 Gilsbakki 14 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi |
|
Lögð fram umsókn Grétars Arnar Sigfinnssonar um, dagsett 28. september 2017, þar sem óskað er eftir um 70 m2 stækkun til norðurs á lóð hans að Gilsbakka 14 á Norðfirði. |
||
15. |
1709192 - 715 Fjörður 1 - Krafa um að óleyfisframkvæmdir sé fjarlægðar |
|
Lagt er fram erindi lögmanns Kötlu Þorsteinsdóttur, dags. 26. september 2017, vegna umdeildra framkvæmda í Firði. Í bréfinu er gerð krafa um að þar til bær aðili innan Fjarðabyggðar hlutist til um að óleyfisframkvæmdir í Firði verði fjarlægðar. Þá er lagt fram minnisblað þar sem fjallað er um aðkomu Fjarðabyggðar að samningaumleitunum sameigenda Fjarðar um afmörkun lóðar og gerð lóðarsamnings og stöðu málsins. |
||
16. |
1704104 - Forsendubrestur í uppbyggingu hesthúsahverfis við Símonartún |
|
Lagt fram til kynningar og umræðu bréf eiganda hesthúss á Símonartúni við Eskifjörð, dagsett 19. apríl 2017, þar sem þess er farið á leit að Fjarðabyggð beri kostnað af flutningi hesthússins af svæðinu vegna forsendubrests á að stunda þar hestamennsku sem er tilkominn vegna aukinnar hættu á ofanflóðum og aukinnar umferðar um Helgustarveg. Bréfritarar leggja til að hætt verði að skilgreina svæðið við Símonartún sem framtíðar hesthúsabyggð. |
||
17. |
1709188 - Stækkun lóðar við leikskólann Lyngholt |
|
innsent erindi frá foreldrafélags leikskólans Lyngholti um stækkun lóðar við leikskólann Lyngholti. |
||
18. |
1710038 - Stefna í málefnum um plastnotkun |
|
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur verkefnastjóra umhverfismála og umhverfisstjóra að skoða hvernig þessu er háttað í verslunum og leggja fyrir nefndina. |
||
19. |
1709178 - Tjaldstæði Reyðarfirði |
|
Sviðsstjóra veitusviðs er veitt framkvæmdaleyfi fyrir fráveitulögn frá tjaldstæðinu á Reyðarfirði til að tengjast fráveitubrunni í Stekk. Settur verður dælubrunnur við tjaldstæðið og PEH rör lagt meðfram andapollinu að brunninum í Stekk. Jafnframt verður núverandi rotþró við tjaldstæðið fjarlægð áamt siturbeði. |
||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00.