188. fundur hafnarstjórnar
Hafnarstjórn - 188. fundur
haldinn í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði, 5. desember 2017 og hófst hann kl. 16:30
Fundinn sátu:
Sævar Guðjónsson Formaður, Pálína Margeirsdóttir Varaformaður, Kristín Ágústsdóttir Aðalmaður, Einar Már Sigurðarson Varamaður og Steinþór Pétursson Embættismaður.
Fundargerð ritaði: Steinþór Pétursson
Á fundinn mætti nýr framkvæmdastjóri Fjarðabyggðarhafna, Hákon Ásgrímsson og sat hann allan fundinn.
Dagskrá:
1. |
1603089 - 735 Hafnarsvæði Eskifirði - hugmyndavinna |
|
Fundargerð frá fundi með fulltrúum Eskju og Mannvits sem haldinn var þann 14. nóvember 2017 að beiðni Eskju. Farið var yfir málefnið og fundargerðin kynnt. |
||
2. |
1711149 - 735 Göt á stálþili frystihúsbryggju á Eskifirði |
|
Ábending kom um gat á stálþili frystihúsbryggju á Eskifirði þar sem verið var að kafa við bryggjuna. Málið var skoðað nánar og ástand bryggjunnar og í ljós komu fleiri tæringargöt en það sem bent var á. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að vinna málið áfram og finna leiðir til úrlausna. |
||
3. |
1706041 - Gjaldskrá Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 2018 |
|
Umfjöllun um gjaldskrá vegna fyrirkomulags úrgangsgjalda að kröfu evrópusambandsins og breytinga á þessum gjaldaþætti í gjaldskrá í kjölfar þess. Hafnarstjórn samþykkir drög að breytingum á 12. gr. gjaldskrá sem varðar gjald fyrir móttöku úrgangs og vísar greininni til afgreiðslu í bæjarráði. |
||
4. |
1712006 - Nýtingaráætlun fyrir haf- og standsvæði í Fjarðabyggð |
|
Lögð fram til kynningar drög að endurnýjuðu erindisbréfi stýrihóps um nýtingaráætlun fyrir haf- og strandsvæði í Fjarðabyggð-, stefnumörkun í fiskeldi í Fjarðabyggð og minnisblað atvinnu- og þróunarstjóra vegna stefnumótunar í fiskeldismálum, dagsett 19. júní 2017. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir erindisbréfið fyrir sitt leyti og vísar endanlegri afgreiðslu til umfjöllunar og afgreiðslu í bæjarráði og bæjarstjórn. Erindinu er jafnframt vísað til umfjöllunar í Hafnarstjórn með ósk um tilnefningu. Hafnarstjórn tilnefnir Sævar Guðjónsson og Eydísi Ásbjörnsdóttur í nefndina. |
||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:45