mobile navigation trigger mobile search trigger
04.12.2017

192. fundur eigna- skipulags- og umhverfisnefndar

Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 192. fundur  

haldinn í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði,

4. desember 2017 og hófst hann kl. 16:00

Fundinn sátu Jón Björn Hákonarson formaður, Svanhvít Yngvadóttir aðalmaður, Einar Már Sigurðarson aðalmaður, Ragnar Sigurðsson varaformaður, Kristjana Guðmundsdóttir aðalmaður, Valur Sveinsson embættismaður, Marinó Stefánsson embættismaður, Anna Berg Samúelsdóttir embættismaður, Þorsteinn Sigurjónsson embættismaður og Ragna Dagbjört Davíðsdóttir embættismaður. 

Fundargerð ritaði Valur Sveinsson. 

Dagskrá: 

1.

1709221 - Gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs 2018

Lög fram tillaga verkefnisstjóra á umhverfissviði um að 3. gr. gjaldskrár fyrir meðhöndlun úrgangs taki breytingum þannig að innleitt verði klippikort til notkunar á söfnunar og móttökustöðum fyrir fyrirtæki og einstaklinga.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir breytinguna fyrir sitt leyti og felur verkefnisstjóra innleiðingu kortanna. Endanlegri afgreiðslu vísað til bæjarráðs.

2.

1702197 - Fyrirkomulag fjallskila og gangnaboð 2017

Fundargerð landbúnaðarnefndar lögð fram. Fyrir liggur að fé er enn á fjalli og samþykkir eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd að fela fjallskilastjóra að fé verði komið á hús hið fyrsta.

3.

1605142 - Skrúðgarðurinn í Neskaupstað

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd fékk kynningu umhverfisstjóra á aðventustund í Skrúðgarði Neskaupstaðar.
Nefndinni lýst vel á hugmyndina og felur umhverfisstjóra framkvæmd hennar í samstarfi við Kvenfélagið Nönnu.

4.

1710046 - Ársfundur Umhverfisstofnunar,náttúrverndarnefnda sveitarfélaga og náttúrustofa

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd fékk kynningu umhverfisstjóra af ársfundi Umhverfisstofnunar, náttúruverndarnefnda sveitarfélaga og náttúrustofa.

5.

1709217 - Gjaldskrá fjarvarmaveitu 2018

Lögð fram tillaga sviðsstjóra veitusviðs um að gjaldskrá Fjarvarmaveitu verði hækkuð um 3,7% frá 1.janúar 2018. Eigna-skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tillögu sviðsstjóra fyrir sitt leiti og vísar tillögunni til umfjöllunar og afgreiðslu í bæjarráði.

6.

1710073 - Ljósleiðaralagning 2018 - Ísland ljóstengt

Lagðar fram til kynningar umsóknir og samþykkt Fjarskiptasjóðs vegna lagningar ljósleiðara í Norðfjarðasveit í tengslum við verkefnið Ísland ljóstengt 2018.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðsstjóra veitusviðs að ræða við hugsanlega samstarfsaðila.

7.

1712002 - Samþykkt stjórnar sambandsins um skýrslu nefndar um forsendur fyrir stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands

Lagt fram til kynningar.

8.

1611104 - Húsnæðisstefna Fjarðabyggðar

Lögð fram tillaga að húsnæðisstefnu Fjarðabyggðar ásamt greiningu á fasteignamarkaði í Fjarðabyggð
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd mun fjalla frekar um málið á næsta fundi nefndarinnar.

9.

1711152 - Beiðni um framlengingu á stöðuleyfi starfsmannabúða að Haga 2017-2018

Lagt fram bréf Ormarrs Örlygssonar fh. Alcoa Fjarðaál, dagsett 23. nóvember 2017, þar sem óskað er eftir framlengingu stöðuleyfis starfsmannabúðanna að Högum til 1. júlí 2018.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir útgáfu stöðuleyfis á sömu forsendum og árið 2016 og miðast það við þann fjölda gámaeininga sem var á svæðinu þegar stöðuleyfið rann út þann 1. júlí 2017.

10.

1712006 - Nýtingaráætlun fyrir haf- og standsvæði í Fjarðabyggð

Lögð fram til kynningar drög að endurnýjuðu erindisbréfi stýrihóps um nýtingaráætlun fyrir haf- og strandsvæði í Fjarðabyggð-, stefnumörkun í fiskeldi í Fjarðabyggð og minnisblað atvinnu- og þróunarstjóra vegna stefnumótunar í fiskeldismálum, dagsett 19. júní 2017.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir erindisbréfið fyrir sitt leyti og vísar endanlegri afgreiðslu til umfjöllunar og afgreiðslu í bæjarráði og bæjarstjórn. Erindinu er jafnframt vísað til umfjöllunar í Hafnarstjórn með ósk um tilnefningu.

11.

1711163 - 740 Kirkjuból - taka lands undan ábúð

Fyrir liggur að gildandi skipulag gerir ráð fyrir því að hluti ábúðarlands verði nýtt undir hestahúsa- og búfjársvæði í Norðfirði. Málið og gögn þess kynnt fyrir nefndinni. Fyrir liggur að taka þarf ákvörðun um framhaldið, eigi að vera unnt að starfa samkvæmt skipulaginu. Lögð fram til kynningar drög að andmælabréfi vegna fyrirhugaðrar töku hluta lands Kirkjubóls í Norðfirði undan ábúð.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að leitað sé eftir sjónarmiðum ábúenda áður en ákvörðun verður tekin í málinu.

12.

1711181 - 755 Heyklif - fyrirspurn um uppbyggingu ferðaþjónustu

Lagt fram bréf Zeppelin arkitekta fh. Heyklifs ehf og eigenda jarðarinnar Heyklif við sunnanverðan Stöðvarfjörð, dagsett 29. nóvember 2017, þar sem óskað er eftir afstöðu nefndarinnar til hugmynda um uppbyggingu á ferðaþjónustu á jörðinni. Gert er ráð fyrir tíu húsum, 30 smáhýsum og 20-30 herbergja hóteli. Lagt fram minnisblað skipulags- og byggingarfulltrúa vegna skipulagsmála landbúnaðarsvæða og ferðaþjónustu innan þeirra.  
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd tekur vel í erindi Heyklifs ehf og eiganda jarðarinnar.  Nefndin felur skipulags- og byggingarfulltrúa að ræða við umsækjanda í samræmi við umræðu á fundinum.   Nefndin telur að uppbygging ferðaþjónustu innan landbúnaðsvæðis samræmist Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 þar sem fyrirhuguð staðsetning mannvirkja er utan ræktaðs lands.

13.

1706060 - 750 Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027, breyting - skógrækt, Víkurgerði

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027, skógrækt í Víkurgerði til auglýsingar. Tillagan er sett fram á uppdrætti og greinargerð dagsett 5. nóvember 2017. Tillagan verði auglýst í samræmi við 31. gr. skipulagslaga. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarstjórnar.

14.

1712007 - Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027, breyting vegna fiskeldis og nýtingaráætlunar fyrir haf- og strandsvæði

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að gera óverulega breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 í samræmi við stefnu Fjarðabyggðar i fiskeldismálum.
Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarstjórnar.

Verkefnisstjóri umhverfismála sat 1. lið.

Umhverfisstjóri sat liði 2, 3 og 4.

Sviðsstjóri veitusviðs sat liði 5 og 6.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00.