26. fundur íþrótta- og tómstundanefndar
haldinn í Molanum fundarherbergi 1, fimmtudaginn 22. september 2016 og hófst hann kl. 16:30
Fundinn sátu:
Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, formaður, Sigríður Margrét Guðjónsdóttir, aðalmaður, Þorvarður Sigurbjörnsson, aðalmaður, Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varamaður, Þóroddur Helgason, embættismaður og Bjarki Ármann Oddsson, embættismaður.
Fundargerð ritaði: Bjarki Ármann Oddsson
Dagskrá:
1. |
1609142 - Málþing um geðheilbrigðisþjónustu á Austurlandi |
|
Heilbrigðisstofnun Austurlands heldur málþing um geðheilbrigðisþjónustu á Austurlandi laugardaginn 1. október í sal Grunnskólans á Reyðarfirði. Málþingið stendur frá kl. 10:00 til 13:00. Íþrótta- og tómstundanefnd fagnar framtakinu og hvetur fólk til að mæta. |
||
|
||
2. |
1605102 - Endurskoðun samnings um útvistun rekstrar Skíðasvæðisins í Oddsskarði |
|
Skoðaðar voru lykiltölur um rekstur Skíðasvæðisins í Oddsskarði og rætt um framtíð svæðisins og næstu skref. |
||
|
||
3. |
1608047 - Endurnýjun á rekstrar- og uppbyggingarsamningum við íþróttafélög í Fjarðabyggð sem reka eigin íþróttaaðstöðu |
|
Íþrótta- og tómstundanefnd þakkar forsvarsmönnum hestamannafélagsins Blæs fyrir kynninguna á starfsemi félagsins. |
||
|
||
4. |
1605167 - Starfs- og fjárhagsáætlun 2017 í íþrótta- og tómstundamálum |
|
Íþrótta- og tómstundafulltrúi fór yfir þá vinnu sem hefur átt sér stað við fjárhagsáætlunargerð 2017. |
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:40