27. fundur íþrótta- og tómstundanefndar
haldinn í Molanum fundarherbergi 1, fimmtudaginn 6. október 2016 og hófst hann kl. 18:00
Fundinn sátu:
Þórdís Mjöll Benediktsdóttir formaður, Jón Kristinn Arngrímsson varaformaður, Jóna Petra Magnúsdóttir aðalmaður, Sigríður Margrét Guðjónsdóttir aðalmaður, Þorvarður Sigurbjörnsson aðalmaður og Bjarki Ármann Oddsson embættismaður.
Fundargerð ritaði: Bjarki Ármann Oddsson
Dagskrá:
1. |
1609157 - Ung fólk 2016 - lýðheilsa ungs fólks í Fjarðabyggð |
|
Fyrir liggur skýrsla Rannsóknar og Greiningar um lýðheilsu ungs fólks í Fjarðabyggð. Skýrslan birtir niðurstöður úr könnun sem gerð var meðal nemenda í 8.-10. bekk grunnskóla í febrúar 2016. Birtur er samanburður á Fjarðabyggð, Höfuðborgarsvæðinu og landinu öllu. Í heild eru niðurstöðurnar mjög jákvæðar og flott ungt fólk bæði hér í Fjarðabyggð sem annars staðar á landinu. Vímuefnaneysla er mjög lítil og það á við um tóbak, áfengi sem og önnur vímuefni. Íþrótta- og tómstundaþátttaka er mikil og nemendur telja sig örugga í því umhverfi sem þeir eru í dags daglega. Nemendur eru í góðum og miklum samskiptum við foreldra og samband þeirra við kennara er gott og er mun betra en það mældist 2014. Flestum nemendum líður vel í skólanum, en þó skera stúlkur í 8. bekk sig úr en þar er líðan í skóla ekki nægilega góð. Í niðurstöðunum kemur fram að nemendur telja lestrarörðugleika hafa hamlandi áhrif á námsframmistöðu sína og það er meira hér í Fjarðabyggð en hjá nemendum annars staðar á landinu. Það er vaxandi kvíði og þunglyndi meðal stelpna á landinu öllu og þar eru stelpur í Fjarðabyggð ekki undantekning, sem er áhyggjuefni, en einnig svefn nemenda sem er of lítill, en um 30 - 40% nemenda sofa 7 klst eða minna á sólarhring, aðeins misjafnt eftir árgöngum. Fylgni er á milli mikils kvíða og þunglyndis og lítils svefns og mikillar notkunar á samskiptamiðlum. Niðurstöðurnar voru kynntar á fundum með foreldrum grunnskóla þriðjudaginn 27. september. Haldnir voru tveir fundir í Fjarðabyggð, á Norðfirði og Fáskrúðsfirði. Samtals mættu rúmlega 30 manns. Á vel lukkuðu málþingi um geðrækt sem haldið var laugardaginn 1. október í Grunnskóla Reyðarfjarðar var einnig farið yfir niðurstöður. Á málþingið mættu um 130 manns víðs vegar að af Austurlandi. Íþrótta- og tómstundanefnd fagnar aukinni umræðu um lýðheilsu og felur sviðsstjóra Fjölskyldusviðs að fara vel yfir niðurstöðurnar með starfsliði fjölskyldusviðs þannig að hægt verði að bregðast sem fyrst við þeim þáttum sem koma ekki nægilega vel út og um leið að vinna að því að viðhalda þeim góða árangri sem náðst hefur á mörgum sviðum. |
||
|
||
2. |
1604052 - Heilsueflandi samfélag - Fjarðabyggð |
|
Fyrir fundinn lá fyrir samstarfssamningur milli Fjarðabyggðar og Embættis landlæknis um þróunarverkefnið „Heilsueflandi samfélag“. Verkefnið miðar að því að efla lýðheilsu og lífsgæði íbúa Fjarðabyggðar með markvissum þverfaglegum heilsueflingaraðgerðum. Íþrótta- og tómstundanefnd leggur til að skipaður verði þverfaglegur stýrihópur um verkefnið, að samningurinn verði samþykktur og vísar honum til bæjarráðs til staðfestingar. |
||
|
||
3. |
1605167 - Starfs- og fjárhagsáætlun 2017 í íþrótta- og tómstundamálum |
|
Íþrótta- og tómstundanefnd fór yfir drög að starfsáætlun fyrir árið 2017 og fjárheimildir sem nefndin hefur til reksturs málaflokksins. Nefndin gerir athugasemd við úthlutun rammans og leggur áherslu á að það vanti átta milljónir upp á málaflokkinn svo hægt sé að innleiða frístundakort. Íþrótta- og tómstundafulltrúa er falið að semja minnisblað til bæjarráðs þar sem farið er yfir áherslur nefndarinnar í fjárhagsvinnunni og tillögum nefndarinnar. |
||
|
||
4. |
1609145 - Íþróttamál í Fjarðabyggð |
|
Íþrótta- og tómstundanefnd þakkar Íþróttafélaginu Þrótti fyrir erindið og frestar frekari umræðum til næsta fundar nefndarinnar. |
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:30