29. fundur íþrótta- og tómstundanefndar
haldinn í Molanum fundarherbergi 1, 10. nóvember 2016 og hófst hann kl. 16:30
Fundinn sátu:
Þórdís Mjöll Benediktsdóttir Formaður, Jón Kristinn Arngrímsson Varaformaður, Jóna Petra Magnúsdóttir Aðalmaður, Þorvarður Sigurbjörnsson Aðalmaður, Stefán Már Guðmundsson Varamaður, Þóroddur Helgason Embættismaður og Bjarki Ármann Oddsson Embættismaður.
Fundargerð ritaði: Bjarki Ármann Oddsson
Dagskrá:
1. |
1608047 - Endurnýjun á rekstrar- og uppbyggingarsamningum við íþróttafélög í Fjarðabyggð sem reka eigin íþróttaaðstöðu |
|
Íþrótta- og tómstundanefnd þakkar forsvarsmönnum Skotíþróttafélagsins Dreka og Vélíþróttafélags Fjarðabyggðar fyrir kynninguna á starfsemi félaganna. Íþrótta- og tómstundanefnd hefur nú fundað með forsvarsmönnum allra íþróttafélaga í Fjarðabyggð sem reka sína eigin íþróttaaðstöðu. Nefndin hefur samþykkt fyrir sitt leyti tillögu að skiptingu rekstrar- og uppbyggingarsamninga og vísar tillögunni til bæjarráðs. |
||
3. |
1602155 - Dekkjakurl á spark- og knattspyrnuvöllum í Fjarðabyggð |
|
Vikuna 24. - 28. október var unnið að því að fjarlægja dekkjakurl af sparkvöllum sveitarfélagsins líkt og íþrótta- og tómstundanefnd og bæjarráð óskaði eftir. Grátt EPDM gúmmí var sett í vellina á Reyðarfirði og Stöðvarfirði. Áætlað er að skipta um gervigrasið á sparkvöllunum á Eskifirði og Fáskrúðsfirði á næsta ári, ásamt því að byggður verði nýr sparkvöllur við Nesskóla. |
||
4. |
1604052 - Heilsueflandi samfélag - Fjarðabyggð |
|
Bæjarráð samþykkti tillögu íþrótta- og tómstundanefndar um skipan þverfaglegs stýrihóps um verkefnið Heilsueflandi samfélag í Fjarðabyggð og fól íþrótta- og tómstundanefnd að skipa stýrihópinn. Íþrótta- og tómstundanefnd ræddi stærð hópsins og mögulega samsetningu. Máli frestað til næsta fundar. |
||
|
|
|
5. |
1611048 - Ályktun frá aðalfundi KFF um málefni Eskjuvallar |
|
Íþrótta- og tómstundanefnd þakkar Knattspyrnufélagi Fjarðabyggðar fyrir erindið og tekur undir að mikilvægt sé að huga að framtíðaruppbyggingu aðalleikvangs sveitarfélagsins. Íþrótta- og tómstundanefnd vísar málinu til Eigna-, skipulags og umhverfisnefndar. |
||
Stefán Már Guðmundsson fer af fundi kl. 18:16 |
||
6. |
1605167 - Starfs- og fjárhagsáætlun 2017 í íþrótta- og tómstundamálum |
|
Fyrir lá breytingartillaga að fjárhagsáætlun 2017 sem samþykkt var í bæjarráði. Á milli umræðna um fjárhagsáætlun í bæjarstjórn hafa fjárheimildir í íþrótta- og tómstundanálaflokknum lækkað um samtals 7.427.000 kr, sem skiptist þannig að 2.803.000 skuli tekið af yfirvinnu en 4.624.000 af öðrum rekstri. Íþrótta- og tómstundanefnd ásamt íþrótta- og tómstundafulltrúa og fræðslustjóra fór yfir stöðu málaflokksins og skoðaði leiðir til að ná fram settu markmiði. Nefndin leggur til að hagrætt verði um 6 milljónir og felur íþrótta- og tómstundafulltrúa að semja minnisblað á grundvelli umræðu í nefndinni. |
||
2. |
1611037 - Fundir Ungmennaráðs Fjarðabyggðar 2016 - 2017 |
|
Fundargerðir ungmennaráðs frá 19. október og 3. nóvember lagðar fyrir og kynntar. Fundargerðir ungmennaráðs má finna á heimasíðu Fjarðabyggðar. |
||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00