36. fundur fræðslunefndar
haldinn í Molanum fundarherbergi 1, 25. janúar 2017 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu:
Pálína Margeirsdóttir Formaður, Óskar Þór Guðmundsson Aðalmaður, Elvar Jónsson Aðalmaður, Kjartan Glúmur Kjartansson Aðalmaður, Guðlaug Dana Andrésdóttir Varaformaður og Gerður Ósk Oddsdóttir Áheyrnarfulltrúi.
Fundargerð ritaði: Þóroddur Helgason, fræðslustjóri
Dagskrá:
1. |
1611105 - Heimsókn í skólastofnanir |
|
Fræðslunefnd heimsótti leikskólana Dalborg á Eskifirði og Lyngholt á Reyðarfirði ásamt aðstöðu leikskólanna í grunnskólunum. Skólastjórnendur sögðu frá skólastarfinu og aðstöðunni. Þörf er á byggja við báða skólana og á árinu 2017 hefur verið sett fjármagn í hönnunarvinnu. Fræðslunefnd þakkar skólastjórnendum fyrir greinargóðar upplýsingar. |
||
2. |
1701017 - Bætt tónlistaraðstaða fyrir ungmenni |
|
Á siðasta fundi fræðslunefndar var fræðslustjóra falið að kanna hversu fjölbreytt hljóðfærakennsla er í tónlistarskólum Fjarðabyggðar og einnig hversu mikið aðgengi nemendur hefðu að æfingaaðstöðu í skólunum og félagsmiðstöðvum í Fjarðabyggð. Fyrir liggur minnisblað frá fræðslustjóra sem hann vann í samráði við skólastjóra tónlistarskólanna og íþrótta- og tómstundafulltrúa. Þar kemur m.a. fram að hljóðfæranám er mjög fjölbreytt í Fjarðabyggð og kennt á fjölmörg hljóðfæri. Söngnám er hins vegar ekki í boði á Reyðarfirði, Eskifirði og Norðfirði sem er bagalegt. Aðstaða til æfinga er í öllum skólum á meðan skólarnir eru opnir og þar æfa nemendur sig í nokkrum mæli. Aðstaða til hljómsveitaæfinga eftir 17:00 á daginn er hins vegar ekki til staðar í skólunum, en hefur verið tímabundið í félagsmiðstöðvunum á Fáskrúðsfirði og Reyðarfirði sem og í Mýrinni á Norðfirði. Fram kom að slík aðstaða væri til staðar en mikilvægt væri að umgengni væri góð og traust á milli þeirra sem æfa og forstöðumanna. Fræðslunefnd þakkar fyrir greinargott yfirlit og hvetur ungmenni að vera í sambandi við bæði skólastjórnendur tónlistarskólanna og forstöðumenn félagsmiðstöðva þannig að nýta megi sem best húsnæði sveitarfélagsins og tónlistaráhuga unga fólksins. |
||
3. |
1701031 - Bætt sál- og sérfræðiþjónusta í grunnskólum |
|
Á siðasta fundi fræðslunefndar var umræðu um geðheilbrigðismál vísað til frekari vinnu á fjölskyldusviði Fjarðabyggðar. Fyrir liggur minnisblað frá fræðslustjóra sem hann vann í samráði við forstöðumann Skólaskrifstofu Austurlands. Í minnisblaðinu er vitnað í reglugerð um nemendur með sérþarfir í grunnskóla nr.584 og minnisblað frá lögfræði- og velferðarsvið Sambands íslenskra sveitarfélaga en þar kemur m.a. fram að skipta megi sérfræðiþjónustunni í grófum dráttum í fjögur stig. 1. Skimun (forvarnarstarf). Á forræði starfsfólks skóla 2. Mat (athugun) á þörf fyrir aðstoð eða frekari greiningu. Á forræði sérfræðiþjónustu skóla. 3. Eftirfylgni við mat á þörf og árangri. Á forræði sérfræðiþjónustu skóla og 4. Frekari greining og meðferðarúrræði. Á forræði stofnana ríkisins. Í minnisblaðinu kemur fram að skóinn kreppi helst á tveimur stöðum. Annars vegar eru það langir biðlistar hjá sálfræðiþjónustu Skólaskrifstofu Austurlands, en hún annast stig 2 og 3 fyrir Austurland og hins vegar er skortur á sálfræðiþjónustu innan HSA, en stofnunni hefur ekki tekist að ráða í stöðugildi sem stofnunin hefur til ráðstöfunnar, en HSA er ein þeirra ríkisstofnana sem annast frekari greiningu og meðferðarúrræði sem falla undir stig 4. Í minnisblaðinu kemur einnig fram að þeir sem þjónustuna veita séu vel meðvitaðir um stöðuna, en skortur sé á fagfólki og fjármagni. Vitnað er í sameiginlegt málþing sem haldið var í Grunnskóla Reyðarfjarðar síðastliðið haust með aðkomu Fjarðabyggðar, Fljótsdalshéraðs, HSA, Sarfa, VA, ME og Virk þar sem farið var ofan í stöðu mála. Þar kom í ljós mikilvægi þess að fjölga meðferðarúrræðum og stytta biðlista. Fræðslunefnd þakkar samantektina og hvetur sveitarstjórnir og ríkisvald að gera það sem í þeirra valdi stendur til að bæta ástandið. Nefndin leggur jafnframt áherslu á mikilvægi forvarnafræðslu og fagnar málþingi eins og því sem haldið var síðasta haust og fræðslufundum stofnana og félagasamtaka. |
||
4. |
1701123 - Kjarasamningur KÍ vegna FG - Vegvísir samstarfsnefndar SNS |
|
Samstarfsnefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara hafa lokið gerð vegvísis að aðgerðaráætlun samkvæmt bókun 1 í kjarasamningi aðila frá 29. nóvember síðastliðinn. Kjarasvið Sambands íslenskra sveitarfélaga boðar í framhaldinu til funda við þá forystumenn sveitarfélaga sem standa að rekstri grunnskóla og koma til með að bera ábyrgð á framkvæmd þess verkefnis sem bókun eitt með kjarasamningi Félags grunnskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga felur í sér. Á fundunum fer fram kynning á vegvísinum og leitast verður við að svara spurningum fundarmanna um innihald hans og væntingar samningsaðila. Fundurinn fyrir Austurland fer fram í Fróðleiksmolanum á Reyðarfirði, Búðareyri 1, 1. febrúar næstkomandi. Fræðslunefnd mun senda fulltrúa á fundinn og leggur áherslu á að vel takist til við vinnu um bókun 1 í kjarasamningi sveitarfélaga við grunnskólakennara. Bókunin gengur út á að ná sátt um starfsumhverfið með því að tryggja að kennsla og undirbúningur séu forgangsverkefni í skólastarfi og létt verði álagi af kennurum þar sem við á. |
||
5. |
1701152 - Niðurstöður Pisa könnunar 2015 |
|
Fyrir liggur minnisblað fræðslustjóra þar sem farið er yfir niðurstöðu Pisa könnunar 2015 fyrir sveitarfélagið Fjarðabyggð. Fram kemur að árangur er umtalsvert betri en 2012 í þeim þremur greinum sem um ræðir. Í náttúrulæsi er árangur yfir landsmeðaltali, jafn landsmeðaltali í stærðfræðilæsi en neðan við landsmeðaltal í lesskilningi. Árangur er þó alls staðar neðan við OECD meðalal líkt og landið í heild. Bestur er árangur í stærðfræðilæsi sem er rétt við OECD meðaltalið. Fræðslunefnd gleðst yfir bættum árangri en leggur jafnframt áherslu á mikilvægi þess að skólastarfið einkennist af fjölbreytilegum kennsluháttum í öllum námsgreinum, góðum skólabrag og vellíðan nemenda. |
||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:30