Menningar- og safnanefnd - 37. fundur
haldinn í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði,
6. desember 2017 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu Dýrunn Pála Skaftadóttir Formaður, Björn Hafþór Guðmundsson Varaformaður, Elías Jónsson Aðalmaður, Björgvin V Guðmundsson Aðalmaður, Gunnlaugur Sverrisson Embættismaður og Kristín Arna Sigurðardóttir Embættismaður. Sigrún Júlía Geirsdóttir boðaði forföll og varamaður hennar gat ekki sótt fundinn. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Dagskrá:
1. |
1710124 - Skýrsla um ferðasumarið 2017 |
|
Framlögð til kynningar skýrsla upplýsingafulltrúa um stöðu ferðamála í Fjarðabyggð sumarið 2017. Í skýrslunni er farið yfir aðsókn að söfnum, tjaldsvæðum og sundlaugum. |
||
Gestir |
||
Upplýsingafulltrúi - 16:30 |
||
2. |
1710076 - Menningarmessa 4. nóvember 2017 |
|
Forstöðumaður menningarstofu gerði grein fyrir Menningarmessu sem haldin var í síðasta mánuði. |
||
3. |
1711145 - Reglur um menningarstyrki 2018 |
|
Endurbættar reglur um menningarstyrki lagðar fram til umræðu. Menningar- og safnanefnd samþykkir framlagðar reglur. Jafnframt felur nefndin forstöðumanni að auglýsa styrki til menningarmála en styrkjum verði úthlutað fyrir lok febrúar 2018. Áhersla verður lögð á verkefni er tengjast börnum og ungmennum við styrkúthlutun á árinu 2018. |
||
4. |
1711164 - Stuðningur við Snorraverkefnið 2018 |
|
Beiðni um styrk til Snorraverkefnisins 2018. Menningar- og safnanefnd getur því miður ekki orðið við beiðni um styrk. |
||
5. |
1612131 - Útilistaverk |
|
Umræða um útilistaverk. Frestað til næsta fundar. |
||
6. |
1711017 - Aðalfundur Héraðsskjalasafns Austfirðinga 2017 |
|
Fundargerð aðalfundar Héraðsskjalasafns Austfirðinga frá 27.nóvember, lögð fram til kynningar. |
||
7. |
1706156 - Fundargerðir Héraðsskjalasafns Austurlands 2017 |
|
Fundargerð stjórnarfundar Héraðsskjalasafns Austfirðinga, frá 30.október 2017, lögð fram til kynningar. |
||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:55.