4. FUNDUR
UNGMENNARÁÐS OG ÍÞRÓTTA- OG TÓMSTUNDAFULLTRÚA VETURINN 2015 – 2016
HALDINN MIÐVIKUDAGINN 9. MARS 2016 KL. 15:30
Á BÆJARSKRIFSTOFUNUM REYÐARFIRÐI
Mætt voru Sigurður Ingvi Gunnþórsson, Jóhann Gísli Jónsson, Guðmundur Bjarnason, Guðrún Edda Gísladóttir, Bríet Irma Ómarsdóttir, Rakel Þorsteinsdóttir og Bjarki Ármann Oddsson sem jafnframt ritaði fundargerð.
- Forvarnardagar 11. og 12. mars
Málþing fyrir 16 – 20 ára ungmenni í Fjarðabyggð
Dagskrá hefst klukkan 16:00 í sal Nesskóla
*Sigrún Þórarinsdóttir frá Fjölskyldusviði Fjarðabyggðar
*Nemandi segir frá eigin reynslu
*Logi Geirsson (fyrrverandi handknattleiksmaður) fjallar um geðræktarmál
*Pizzur fyrir alla og umræður
Dagskrá lýkur um 19:00 og nemendur fara heim með rútum
Lagt fram til kynningar.
- Umsögn um 13. mál um frumvarp til laga um áfengi og tóbak ofl.
Ungmennaráð Fjarðabyggðar telur mikilvægt að aðgengi ungmenna að áfengi verði áfram reynt að takmarka. Unglingadrykkja á Íslandi er með lægsta móti og mikilvægt að ef ný áfengislöggjöf verði samþykkt að hún muni ekki hafa áhrif á það.
- Skuggakosningar
Formaður ungmennaráðs kynnti skuggakosningar fyrir ungmennaráðsmeðlimi. Ungmennaráð var sammála um að vinna áfram og þróa hugmyndina um skuggakosningar fyrir Fjarðabyggð.
- Rekstur og umhverfi félagsmiðstöðva í Fjarðabyggð
Góðar umræður voru í hópnum, íþrótta- og tómstundafulltrúi vinnur málið áfram í samráði við ungmennaráð.
- Fundargerðir fastanefnda
Lesið var yfir tvær síðustu fundargerðir fastanefnda Fjarðabyggðar og athugað hvort einhver málefni hefðu átt að koma á borð ungmennaráðs til umsagna. Íþrótta- og tómstundafulltrúi tekur að sér að láta viðkomandi fastanefndir vita.
Fleira ekki tekið fyrir. Fundi slitið kl. 16:50.