mobile navigation trigger mobile search trigger
11.05.2017

40. fundur fræðslunefndar

haldinn í Molanum fundarherbergi 1 og 2, 10. maí 2017 og hófst hann kl. 16:30

Fundinn sátu:

Pálína Margeirsdóttir Formaður, Óskar Þór Guðmundsson Aðalmaður, Elvar Jónsson Aðalmaður, Guðlaug Dana Andrésdóttir Varaformaður, Ragnar Sigurðsson Varamaður, Lísa Lotta Björnsdóttir Áheyrnarfulltrúi, Einar Már Sigurðarson, Áheyrnarfulltrúi.

Fundargerð ritaði: Þóroddur Helgason, fræðslustjóri 

Dagskrá: 

1.

1705053 - Fyrirkomulag á lokun og opnun leikskóla í tengslum við sumarlokun

Fyrir liggur bréf frá leikskólastjórum þar sem rætt er um fyrirkomulag á lokun og opnun leikskóla í tengslum við sumarlokun leikskóla. Æskilegasta formið að þeirra mati er að leikskólinn verði opinn fram að hádegi síðasta dag fyrir sumarlokun og leikskólinn opni aftur eftir sumarlokun í hádeginu. Ósk þeirra er að slíkt fyrirkomulag verði tekið upp sumarið 2017. Fræðslunefnd getur ekki orðið við beiðninni þar sem nú þegar hefur verið auglýst sumarlokun og foreldrar ganga út frá þeim dögum sem auglýstir hafa verið. Fræðslunefnd telur rétt að ræða í haust um fyrirkomulag sumarlokunar leikskóla við fulltrúa foreldrafélaga, atvinnulífs og stjórnenda leikskóla.

2.

1704098 - Ungt fólk - 8.-10.bekkur - vímuefnanotkun

Fyrir liggur skýrsla frá Rannsóknum og greiningu um vímuefnanotkun ungs fólks í Fjarðabyggð. Skýrslan byggir á könnun sem lögð var fyrir alla nemendur í 8. til 10. bekk á Íslandi í febrúarmánuði árið 2017. Forvarnarstarf meðal unglinga í grunnskólum hefur verið mjög öflugt undanfarin ár og er hið svokallaða „íslenska módel“ nú notað sem fyrirmynd starfs víðs vegar í Evrópu. Fjarðabyggð hefur um 10 ára skeið verið með samning við Rannsóknir og greiningu um að taka saman sérstaka skýrslu fyrir sveitarfélagið og aðstoða við kynningu á niðurstöðum. Þriðjudaginn 25. apríl voru niðurstöður kynntar á opnum fundi um vímuefnamál í Grunnskólanum á Reyðarfirði. Niðurstöðurnar sýndu að ungmennin okkar eru áfram afhuga vímuefnanotkun. Tóbaks- og áfengisnotkun og notkun á ólöglegum vímuefnum er hverfandi. Eina vímuefnið sem fer uppá við í notkun er raf-sígarettan (rafrettan), en í Fjarðabyggð eins og á landinu öllu eru ungmenni að fikta við hana og þar er mikilvægt að spyrna við fótum. Eftirtektarvert er að ungmennin segja afstöðu foreldra mjög skýra gegn allri notkun vímuefna, en skýr afstaða og stuðningur foreldra við ungmennin skiptir gríðarlegu máli. Fræðslunefnd lýsir ánægju með afstöðu unga fólksins til vímuefnanotkunar.

3.

1704093 - Úthlutun úr Endurmennturnarsjóði grunnskóla 2017

Bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um úthlutun úr Endurmenntunarsjóði grunnskóla 2017 lagt fram til kynningar. Sveitarfélagið Fjarðabyggð fékk styrk upp á 540.000 kr. vegna þriggja námskeiða og Grunnskóli Reyðarfjarðar fékk styrk upp á 72.000 kr. vegna eins námskeiðs.

4.

1701123 - Kjarasamningur KÍ vegna FG - Vegvísir samstarfsnefndar SNS

Formaður fræðslunefndar fór yfir vinnu vegna bókunar 1 í kjarasamningi KÍ og FG. Fylgt hefur verið leiðbeiningum í Vegvísi samstarfsnefndar SNS. Formaður nefndarinnar og fræðslustjóri hafa átt tvo fundi með fulltúum kennara í hverjum skóla. Fyrir liggja drög að úrbótaáætlunum fyrir skólana, en fulltrúar kennara munu kynna þau fyrir kennurum á næstu dögum. Fræðslunefnd samþykkir drögin fyrir sitt leyti og vísar til frekari umræðu og samþykktar í bæjarráði.

     Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:30