41. fundur íþrótta- og tómstundanefndar
haldinn í Molanum fundarherbergi 1, 12. október 2017 og hófst hann kl. 16:30
Fundinn sátu:
Þórdís Mjöll Benediktsdóttir Formaður, Þorvarður Sigurbjörnsson Aðalmaður, Guðmundur Arnar Guðmundsson Varamaður og Þóroddur Helgason og Bjarki Ármann Oddsson Embættismenn.
Fundargerð ritaði: Bjarki Ármann Oddsson
Daskrá:
1. |
1705245 - Innkaupareglur Fjarðabyggðar - endurskoðun 2017 |
|
Drög að innkaupareglum Fjarðabyggðar lagðar fram og kynntar. Íþrótta- og tómstundanefnd gerir ekki athugasemdir við drögin. |
||
2. |
1710048 - Verkaefnalisti fyrir Skíðamiðstöðina í Oddskarði |
|
Að beiðni sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs settu rekstraraðilar Skíðasvæðisins í Oddsskarði saman minnisblað varðandi framtíðaruppbyggingu skíðasvæðisins. Minnisblaðið lagt fram og kynnt fyrir íþrótta- og tómstundanefnd. Íþrótta- og tómstundanefnd þakkar rekstraraðila SKO fyrir og líst vel á þær hugmyndir sem settar eru fram í minnisblaðinu. |
||
3. |
1710047 - Vallarvinnusamningar 2018 |
|
Vallarvinnusamningar við KFF og Leikni eru útrunnir. Íþrótta- og tómstundanefnd felur íþrótta- og tómstundafulltrúa að vinna að nýjum samningum fyrir árin 2018-2020. |
||
4. |
1709209 - Gjaldskrá líkamsrækatarstöðva 2018 |
|
Íþrótta- og tómstundanefnd samþykkir fyrir sitt leyti gjaldskrá fyrir líkamsræktarstöðvar fyrir árisð 2018 og vísar málinu til bæjarráðs. Heilt yfir hækkar gjaldskráin um 2,7%. Auk þess leggur íþrótta- og tómstundanefnd til að Fjarðabyggð gefi eldri borgurum búsettum í sveitarfélaginu frían aðgang í líkamsrætarstöðvar sínar utan álagstíma. |
||
5. |
1709208 - Gjaldskrá í íþróttamannvirkjum Fjarðabyggðar 2018 |
|
Íþrótta- og tómstundanefnd samþykkir fyrir sitt leyti gjaldskrá fyrir íþróttamannvirki fyrir árið 2018 og vísar málinu til bæjarráðs. Heilt yfir hækkar gjaldskráin um 2,7%. |
||
6. |
1706018 - Starfs- og fjárhagsáætlun 2018 íþrótta- og tómstundanefnd |
|
Farið var yfir fjárhagsáætlun í íþrótta- og tómstundamálum og hún borin saman við úthlutaðan fjárhagsramma. Munur á fjárhagsáætlun og fjárheimildum er um 1,8%, ef tekin verða upp frístundakort annars er munurinn 0,6%. Einnig var farið yfir drög að starfsáætlun í íþrótta- og tómstundamálum fyrir árið 2018. Íþrótta- og tómstundafulltrúa og fræðslustjóra er falið að ljúka við fjárhags- og starfsáætlun í takt við umræðu í nefndinni. |
||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00