43. fundur fræðslunefndar
haldinn í Molanum fundarherbergi 1, 23. ágúst 2017 og hófst hann kl. 16:30
Fundinn sátu:
Pálína Margeirsdóttir Formaður, Hafþór Eiríksson Varamaður, Margrét Perla Kolka Leifsdóttir Varamaður og Ragnar Sigurðsson Varamaður
Áheyrnarfulltrúi: Lísa Lotta Björnsdóttir, áheyrnarfulltrúi leikskóla
Fundargerð ritaði: Þóroddur Helgason, fræðslustjóri
Dagskrá:
1. |
1708003 - Beiðni nemenda Tónlistarskóla Eskifjarðar og Reyðarfjarðar um styrk vegna tónleikaferðar erlendis |
|
Fyrir liggur beiðni nemenda Tónlistarskóla Eskifjarðar og Reyðarfjarðar un styrk vegna tónleikaferðar erlendis. Fimm nemendur skólans ásamt skólastjóra og tveimur foreldrum slást í för með Blásarasveit Tónlistarskólans á Akureyri og taka þátt í æfinga- og tónleikaferð til Þýskalands. Fræðslunefnd vísar beiðninni til fræðslustjóra til afgreiðslu. |
||
2. |
1707064 - Ytra mat á grunnskóla - Nesskóla |
|
Menntamálastofnun sér um framkvæmd ytra mats í leik-, grunn- og framhaldsskólum fyrir hönd mennta- og menningarmálaráðuneytis. Skólar hafa verið valdir til ytra mats árið 2017 og Nesskóli er þar á meðal. Skólastarfið verður metið á haustönn 2017. Fræðslunefnd lýsir ánægju með valið, en bæði Grunnskólinn á Eskifirði og Grunnskóli Reyðarfjarðar fóru í slíkt mat 2014 og reyndist það bæði hvetjandi og gagnlegt fyrir skólastarfið. Þungamiðjan í matinu er a) stjórnun, b) nám- og kennsla og c) vinnubrögð við innra mat. Fræðslunefnd óskar matsmönnum og starfsfólki Nesskóla velfarnaðar í störfum sínum. |
||
3. |
1706096 - Áskorun frá stýrihóp um Heilsueflandi Samfélag í Fjarðabyggð |
|
Fræðslunefnd fagnar framtaki Stýrihóps um Heilsueflandi samfélag í Fjarðabyggð og tekur undir með hópnum að halda gildum Heilsueflandi samfélags á lofti við komandi fjárhagsáætlunarvinnu fyrir árið 2018. Fræðslunefnd mun hafa gildi Heilsueflandi samfélags í huga við gerð starfs- og fjárhagsáætlunar 2018. |
||
4. |
1706124 - Fundargerðir framkvæmdastjórnar Skólaskrifstofu 2017 |
|
Fundargerð framkvæmdastjórnar Skólaskrifstofu Austurlands frá 19.júní 2017, lögð fram til kynningar. |
||
5. |
1611044 - Viðbyggingaþörf við leikskóla á Eskifirði og Reyðarfirði |
|
Fyrir liggur minnisblað fræðslustjóra varðandi vinnu við forhönnun viðbygginga við leikskólana Dalborg og Lyngholt. Í minnisblaðinu er einnig farið yfir fjöldatölur í leik- og grunnskólunum á Eskifirði og Reyðarfirði og líklegan fjölda nemenda næstu ár, ásamt fjölda barna í grunnskóla og ástandi leikskólahúsnæðis. Miðað við fjölda í árgöngum á leikskólaaldri og öra fjölgun barna á leik- og grunnskólaaldri á Reyðarfirði er brýnt að hefja framkvæmdir við viðbyggingu þar. Verði ekki hægt að fara í báðar viðbyggingar samtímis leggur fræðslunefnd til að byrjað verði á Lyngholti, en samtímis unnið að lagfæringum á lóð við Grunnskólann á Eskifirði. Fræðslunefnd vísar málinu til frekari umfjöllunar í tengslum við vinnu við fjárhagsáætlun 2018. |
||
6. |
1707101 - Ráðningar í leik- og grunnskóla |
|
Fræðslustjóri gerði grein fyrir ráðningum nýrra starfsmanna í leik-, grunn- og tónlistarskóla Fjarðabyggðar. Fram kom að tekist hefði að ráða í flestar lausar stöður fyrir skólabyrjun og opna allar deildir leikskóla, grunn- og tónlistarskóla og frístundina. Á leikskólanum Lyngholti hefur nýjum börnum verið boðin vistun til 13:30, þar sem enn vantar starfsfólk til vinnu eftir hádegi, en vonir standa til að hægt verði að ráða og bjóða upp á fulla vistun á næstunni. Nemendum í bæði leik- og grunnskólum Fjarðabyggðar er að fjölga á milli skólaára, sem aftur kallar á fleira starfsfólk. Fræðslunefnd fagnar fjölgun nemenda og því að tekist hafi að opna skólana með góðu starfsfólki og vonar að vel gangi að ráða í vetur, þegar taka þarf inn nýja nemendur. Jafnframt skorar fræðslunefnd á stýrihóp um Háksólasetur Austurlands að huga sérstaklega að námsframboði og námsaðstöðu fyrir þá sem vilja hefja nám í leik- og grunnskólakennarafræðum. |
||
7. |
1706147 - Stúdentaskipti milli Fjarðabyggðar (Fáskrúðsfjarðar) og Gravelines |
|
Lagt fram til kynningar erindi frá Gravelines til bæjarstjórnar varðandi stúdentasamskipti milli Fjarðabyggðar (Fáskrúðsfjarðar) og Gravelines. Í erindinu koma fram hugmyndir sem lúta að því að ungt fólk á aldrinum 18 - 25 ára eigi kost á að taka þátt. Fræðslunefnd tekur vel í þróa verkefnið áfram. |
||
8. |
1705239 - Upplýsingatæknimál - tölvuver grunnskólanna |
|
Fræðslustjóri gerði grein fyrir stöðu upplýsingatæknimála í grunnskólum Fjarðabyggðar, en í haust er verið að taka í notkun svokallaða skýjalausn. Samhliða voru tölvuver skólanna aflögð og keyptar fartölvur og hleðsluskápar í skólana. |
||
9. |
1705194 - Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2018 |
|
Rætt var um forsendur starfs- og fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar fyrir árið 2018. Meðal annars var fjallað um þróun í nemendafjölda í skólum Fjarðabyggðar og áhrif fyrirsjáanlegrar fjölgunar nemenda í leik- og grunnskólum Fjarðabyggðar. þá voru ræddar áherslur í fjölskyldustefnu Fjarðabyggðar og hugmyndir sem tengjast Fjarðabyggð sem heilsueflandi samfélagi. |
||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:18