mobile navigation trigger mobile search trigger
07.09.2017

44. fundur fræðslunefndar

haldinn í Molanum fundarherbergi 1, 6. september 2017 og hófst hann kl. 16:30

  

Fundinn sátu:

Pálína Margeirsdóttir Formaður, Elvar Jónsson Aðalmaður, Kjartan Glúmur Kjartansson Aðalmaður, Guðlaug Dana Andrésdóttir Varaformaður og Aðalheiður Vilbergsdóttir Varamaður.

 Fundargerð ritaði: Þóroddur Helgason, fræðslustjóri

 Dagskrá: 

1.

1709007 - Heimsókn skólastjóra til fræðslunefndar haustið 2017

Skólastjórar leikskólanna Eyrarvalla, Dalborgar og Lyngholts og skólastjóri Stöðvarfjarðarskóla mættu á fund fræðslunefndar. Skólastjórarnir gerðu grein fyrir skólastarfinu og svöruðu spurningum varðandi skólastarfið. Fræðslunefnd þakkar skólastjórum fyrir greinargóðar upplýsingar.

2.

1709028 - Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2018 - Fræðslunefnd

Rætt var um vinnu við starfs- og fjárhagsáætlun 2018 og farið yfir fjárheimildir fræðslunefndar í fjárhagsáætlun 2018. Frekari umræðu frestað til næsta fundar.

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:15