mobile navigation trigger mobile search trigger
05.10.2015

445. fundur bæjarráðs

Bæjarráð - 445. fundur
haldinn í Molanum fundarherbergi 3, fimmtudaginn 1. október 2015
og hófst hann kl. 12:00


Fundinn sátu:
Jón Björn Hákonarson varaformaður, Eydís Ásbjörnsdóttir, Valdimar O Hermannsson, Gunnar Jónsson, Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri.

Fundargerð ritaði: Gunnar Jónsson.

Dagskrá:

1. 1508025 - Starfs- og fjárhagsáætlun 2016 í fræðslumálum
Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri ásamt fræðslustjóra og formanni fræðslunefndar.
Farið yfir með fræðslustjóra og formanni áherslur í fjárhagsáætlunargerð og gjaldskrár fyrir árið 2016.

2. 1508076 - Starfs- og fjárhagsáætlun 2016 í íþrótta- og tómstundamálum
Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri ásamt fræðslustjóra og formanni íþrótta- og tómstundanefndar sem var í símasambandi við fundinn.
Farið yfir með fræðslustjóra og formanni áherslur í fjárhagsáætlunargerð og gjaldskrár fyrir árið 2016.

3. 1509023 - Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2016 - menningar- og safnanefnd
Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri ásamt forstöðumanni menningar- og safnamála. Formaður menningar- og safnanefndar boðaði óvænt forföll.
Farið yfir með forstöðumanni og formanni áherslur í fjárhagsáætlunargerð og gjaldskrár fyrir árið 2016.

4. 1509176 - Aðalfundur Landsbyggðarinnar lifi 2015 - 10.október
Framlagt aðalfundarboð Landsbyggðin lifi laugardaginn 10. október n.k. kl 13:30 á Kópaskeri.
Lagt fram til kynningar. Vísað til verkefnastjóra atvinnumála.

5. 1509175 - Aðalfundur HAUST 2015 - 28.október
Fram lagt aðalfundarboð Heilbrigðiseftirlits Asturlands en aðalfundur er boðaður 28. október n.k. að Hoffelli á Hornafirði.
Bæjarráð felur Jóni Birni Hákonarssyni að fara með umboð Fjarðabyggðar á fundinum ásamt bæjarstjóra.

6. 1406056 - 735 Ofanflóðvarnir í Hlíðarendaá
Fram lagður verksamningur um ofanflóðavarnir á Eskifirði í Hlíðarendaá, uppsetning varnarmannvirkja.
Bæjarráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti. Bæjarstjóra falið að undirrita samninginn.

7. 1509192 - Kjördæmavika þingmanna Norðausturkjördæmis dagana 28.september - 2.október 2015
Bæjarfulltrúar og bæjarstjóri sátu fyrr í dag fund með þingmönnum kjördæmisins þar sem farið var yfir áherslumál Austurlands og sveitarfélagsins.

8. 1509193 - 16.mál til umsagnar tillögu til þingsályktunar um styrkingu leikskóla og fæðingarorlofs
Fram lögð til kynningar þingsályktunartillsgs um skipan starfshóps sem geri tillögur um hvernig staðið skuli að lengingu fæðingarorlofs í 18 mánuði og fjármögnun þessa að byggja upp leikskóla sína
þannig að þeir geti tekið við öllum ársgömlum börnum í gjaldfrjálsan leikskóla ásamt nauðsynlegum lagabreytingum til að styrkja stöðu leikskólanna sem fyrsta skólastigsins í menntakerfi landsins.


9. 1502135 - Fundagerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2015
Framlögð til kynningar 22. fundargerð stjórnar samtaka sjávarútvegsfyrirtækja frá 21.9.2015

10. 1509011F - Íþrótta- og tómstundanefnd - 14
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 22. september s.l. lögð fram til kynningar.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:00