mobile navigation trigger mobile search trigger
17.11.2015

452. fundur bæjarráðs

Bæjarráð - 452. fundur  

haldinn í Molanum fundarherbergi 3, mánudaginn 16. nóvember 2015

og hófst hann kl. 08:30

Fundinn sátu Jens Garðar Helgason formaður, Eydís Ásbjörnsdóttir, Jón Björn Hákonarson, Páll Björgvin Guðmundsson og Gunnar Jónsson er jafnframt ritaði fundargerð.

Dagskrá:

1.

1503049 - Rekstur málaflokka 2015 - TRÚNAÐARMÁL

Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri. Framlagt sem trúnaðarmál málaflokkayfirlit um rekstur og framkvæmdir janúar - september 2015 ásamt yfirliti yfir tekjur og launakostnað fyrir janúar - október 2015.

 

2.

1411075 - Fjarðabyggð til framtíðar - Trúnaðarmál

Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri. Farið yfir framvindu verkefna sem tengjst Fjarðabyggð til framtíðar.

 

3.

1510117 - Gjaldskrár í íþróttamannvirkjum Fjarðabyggðar 2016

Þennan lið dagskrár sátu fjármálastjóri og fræðslustjóri. Íþrótta- og tómstundanefnd hefur lagt til að gerð verði sú breyting á gjaldskrá sundlauga, að börn í Fjarðabyggð fái árskort endurgjaldslaust í sundlaugar sveitarfélagsins. Bæjarráð samþykkir tillögu íþrótta- og tómstundanefndar. Jafnframt samþykkir bæjarráð að almennt stakt gjald fyrir fullorðinn einstakling í sund verði 700 kr.

 

4.

1508076 - Starfs- og fjárhagsáætlun 2016 í íþrótta- og tómstundamálum

Þennan lið dagskrár sátu fjármálastjóri og fræðslustjóri. Bréf bæjarstjóra til fastanefnda þar sem óskað var eftir tillögum að hagræðingarleiðum. Í bréfi til íþrótta- og tómstundanefndar er óskað eftir að nefndin vinni að frekari hagræðingu og kanni m.a. opnunartíma íþróttamannvirkja. Íþrótta- og tómstundanefnd ásamt íþrótta- og tómstundafulltrúa og fræðslustjóra hefur farið yfir stöðu málaflokksins og skoðaði leiðir til að ná fram settu markmiði. Íþrótta- og tómstundanefnd fól íþrótta- og tómstundafulltrúa að gera breytingar á starfsáætlunum í takt við niðurstöðu nefndarinnar um frekari hagræðingu og breytingu á gjaldskrá. Bæjarrráð samþykkir tillögur íþrótta- og tómstundanefndar en þær miða að því að sundlaugum verði lokað frá kl. 18:00 á föstudögum og á rauðum dögum, utan helgidaga í kringum páska, verður sundlaugunum lokað til skiptis.

 

5.

1510013 - Gjaldskrár í fræðslumálum 2016

Þennan lið dagskrár sátu fjármálastjóri og fræðslustjóri. Gjaldskrár leikskóla.   Fræðslunefnd hefur lagt til að aukagjald verði lagt á vistun á leikskólunum umfram 8 stundir og boðið verði upp á hámark 9 stunda vistun í stað 8,5 stunda.Bæjarráð samþykkir tillögu fræðslunefndar um að boðið verið upp á að hámarki 9 stunda vistun gegn hærra gjaldi sbr. tillögu nr. 3 hjá fræðslunefnd.

 

6.

1508025 - Starfs- og fjárhagsáætlun 2016 í fræðslumálum

Þennan lið dagskrár sátu fjármálastjóri og fræðslustjóri. Í bréfi til fræðslunefndar var óskað eftir að fræðslunefnd vinni að frekari hagræðingu í fræðslumálum og kanni m.a. hvort svigrúm sé til staðar út frá úthlutunarmódeli kennslutímamagns. Fræðslunefnd ásamt fræðslustjóra hefur farið yfir stöðu málaflokksins og skoðað leiðir til að ná fram settu markmiði. Fræðslunefnd fól fræðslustjóra að gera breytingar á starfsáætlunum í takt við niðurstöðu nefndarinnar um frekari hagræðingu upp á 12,5 - 15 milljónir og tillögu nefndarinnar um breytingu á gjaldskrá. Bæjarráð samþykkir tillögur fræðslunefndar sem miða að 12,5 milljóna kr. hagræðingu í rekstri fræðslumálaflokks.

 

7.

1506139 - Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2016

Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri. Farið yfir stöðu áætlunar eftir breytingar sem hafa verið gerðar frá fyrri umræðu, sbr. minnisblað fjármálastjóra. Ný þjóðhagsspá hefur verið gefin út sem gerir ráð fyrir hægari verðlagsþróun á árinu 2016 en upphaflega var gert ráð fyrir við úthlutun á fjárhagsrömmum 2016 í ágúst sl. Bæjarráð samþykkir í ljósi nýrra verðlagsforsendna í þjóðhagsspá að gjaldskrár þjónustugjalda, þar sem það á við hjá Fjarðabyggð, hækki um 3,2% en ekki 4,3% eins og rammarnir gerðu ráð fyrir. Bæjarráð vísar fjárhagsáætlun 2016 ásamt starfsáætlunum til síðari umræðu í bæjarstjórn, með þeim breytingum sem gerðar hafa verið á henni.

 

8.

1506140 - Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2017 - 2019

Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri Bæjarráð vísar fjárhagsáætlun 2017 til 2019 til síðari umræðu með þeim breytingum sem leiða af breytingum þeim sem gerðar hafa verið á fjárhagsáætlun 2016.

 

9.

1511080 - Umsókn um styrk til flutnings tónlistar fyrir aldraða á aðventunni

Framlögð beiðni Erlu Dóru Vogler um 50.000 kr. styrk til að halda tvenna tónleika á sjúkrahúsinu í Neskaupstað og á dvalarheimilinu Uppsölum á Fáskrúðsfirði.   Bæjarráð samþykkir að styrkja tónleikana um 75.000 kr. og tónleikar verði haldnir í Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað, Hulduhlið á Eskifirði og Uppsölum á Fáskrúðsfirði. Tekið af liðnum óráðstafað 21690.

 

10.

1503148 - Aðstöðuhús við smábátahafnir

Fundargerð dags. 11. nóvember 2015, frá opnun tilboða í smíði þjónustuhúss á Stöðvarfirði ásamt minnisblaði framkvæmdastjóra hafna. Bæjarráð staðfestir höfnun tilboðs.

 

11.

1510140 - Gjaldskrá safna 2016

Framlögð drög að gjaldskrá safna í Fjarðabyggð á árinu 2016. Bæjarstjóra var falið að skoða gjaldskrána nánar á fundi bæjarráðs 19. október sl. Lagt er til að íbúar Fjarðabyggðar fái frítt í söfnin í júlí 2016. Bæjarráð samþykkir að íbúar Fjarðabyggðar fá frítt i söfnin júní, júlí og ágúst árið 2016.

 

12.

1506017 - Sóknaráætlun Austurlands 2015 - 2019

Uppbyggingarsjóður Austurlands auglýsir eftir umsóknum um styrki til menningar- og nýsköpunarverkefna. Umsóknarfrestur er til 15.desember nk. Bæjarráð vísar erindi til sviðsstjóra til úrvinnslu.

 

13.

1511054 - Þjónustusamningur milli Austurbrúar og Fjarðabyggðar 2015

Framlögð drög að samningi um markaðsframlag og atvinnuframlag til Austurbrúar vegna ársins 2015. Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.

 

14.

1501273 - Fundargerðir barnaverndarnefndar 2015

Fundargerð barnaverndarnefndar, nr. 59 frá 2. nóvember sl., lögð fram til kynningar.

 

15.

1511003F - Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 131

Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 131, lögð fram til kynningar.

 

16.

1511005F - Hafnarstjórn - 156

Fundargerð hafnarstjórnar nr. 156, lögð fram til kynningar.

 

17.

1511006F - Fræðslunefnd - 22

Fundargerð fræðslunefndar nr. 22, lögð fram til kynningar.

 

18.

1511007F - Menningar- og safnanefnd - 18

Fundargerð menningar- og safnanefndar nr. 18, lögð fram til kynningar.

 

19.

1511008F - Íþrótta- og tómstundanefnd - 16

Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar nr. 16, lögð fram til kynningar.

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:30.