mobile navigation trigger mobile search trigger
17.10.2016

493. fundur bæjarráðs

Bæjarráð - 493. fundur  haldinn í Molanum fundarherbergi 3,

 mánudaginn 17. október 2016 og hófst hann kl. 08:30

Fundinn sátu Valdimar O. Hermannsson Formaður, Eydís Ásbjörnsdóttir Aðalmaður, Jón Björn Hákonarson Aðalmaður, Gunnlaugur Sverrisson Embættismaður og Páll Björgvin Guðmundsson Bæjarstjóri.

Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Dagskrá:

 

1.  

1605024 - Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2017

Lagt fram minnisblað fjármálastjóra, frá 16.október 2016, um drög að fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2017. Fjármálastjóri fór yfir efni minnisblaðsins. Fjárhagsætlun verður lögð fram í bæjarráði 31.október. Vísað til bæjarstjóra til áframhaldandi vinnslu.

 

Gestir

Snorri Styrkársson - 08:30

 

2.  

1610047 - Form og efni viðauka við fjárhagsáætlun

Framlagt til kynningar bréf frá Innanríkisráðuneytinu um form og efni viðauka við fjárhagsáætlanir sveitarfélaga. Vísað til fjármálastjóra til frekari skoðunar.

 

Gestir

Snorri Styrkársson - 09:19

 

3.  

1603023 - Kaupréttarákvæði 2016 um Melgerði 13 Reyðarfirði

Svarbréf framkvæmdastjóra Eikar fasteignafélags hf. við kauptilboði Fjarðabyggðar vegna Melgerði 13 Reyðarfirði. Vísað til fjármálastjóra til frekari skoðunar.

 

Gestir

Snorri Styrkársson - 09:21

 

4.  

1602151 - Svæðisskipulag fyrir Austurland

Skipan varafulltrúa í starfshóp SSA sem vinnur að svæðisskipulagi fyrir Austurland. Bæjarráð samþykkir að skipa sem varafulltrúa Fjarðabyggðar í starfshóp um svæðisskipulag Austurlands þau Pálínu Margeirsdóttur og Gunnar Jónsson.

 

5.  

1609096 - Alþingiskosningar 2016

Kjörfundir í Fjarðabyggð. Yfirkjörstjórn leggur til að kjördeildir í Fjarðabyggð verði sex eins og í flestum undangengnum kosningum; Eskifjörður, Fáskrúðsfjörður, Mjóifjörður, Neskaupstaður, Reyðarfjörður og Stöðvarfjörður. Jafnframt er ákveðið að opnunartími kjörstaða verði frá kl. 09:00 til kl. 22:00, nema í Mjóafirði, þar sem kjörfundur er opnaður kl. 09:00 og lýkur strax og unnt er skv. 89. gr. laga nr. 24/2000 um kosningar til Alþingis, en þó ekki fyrr en kl. 14:00 og ekki síðar en kl. 17:00. Bæjarráð samþykkir fyrirkomulag kjördeilda.

 

6.  

1610002 - Lagfæring á veg frá Viðfirði út að Barðsnesi sunnan Norðfjarðar

Beiðni Ingólfs Sveinssonar um aðkomu bæjarins að lagfæringu vegar frá Viðfirði út að Barðsnesi sunnan Norðfjarðar. Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar til afgreiðslu.

 

7.  

1610048 - Hækkun mótframlags launagreiðenda i A deild Brúar lífeyrissjóðs

Framlagt til kynningar samkomulag um framtíðarskipan lífeyrismála opinberra starfsmanna og tölvupóstur framkvæmdastjóra Sambands sveitarfélaga um lífeyrismál.

 

8.  

1602127 - Fundargerðir Héraðsskjalasafns Austfirðinga 2016

Fundargerð stjórnar Héraðsskjalasafns frá 26.september 2016, lögð fram til kynningar og vísað til menningar- og safnanefndar.

 

9.  

1605076 - Aðalfundur SSA 2016

Fundargerð aðalfundar 2016 lögð fram til kynningar.

 

10.  

1604003 - Byggðaáætlun 2017 - 2023

Samráðsfundur um nýja byggðaáætlun verður haldinn 25. október nk. og hefst kl.16.00. Um er að ræða fund sem frestað var í byrjun mánaðarins. Frestur til að skila inn tillögum fyrir nýja byggðaáætlun rennur út í lok þessarar viku. Tillögum er hægt að skila inn í gegnum vef Byggðastofnunar. Bæjarfulltrúar eru hvattir til að sækja fundinn.

 

Bæjarráð sendir Verkmenntaskóla Austurlands hamingjuóskir með 30 ára afmæli skólans og velheppnaðan tæknidag fjölskyldunnar sem haldinn var um síðustu helgi.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:10.