Bæjarráð - 506. fundur
haldinn í Molanum fundarherbergi 3,
23. janúar 2017 og hófst hann kl. 08:30
Fundinn sátu Jón Björn Hákonarson varaformaður, Valdimar O Hermannsson varamaður, Esther Ösp Gunnarsdóttir varamaður, Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri og Gunnar Jónsson embættismaður.
Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Dagskrá:
1. |
1612126 - Endurfjármögnun skammtímaláns 2017 |
|
Framhaldið umræðu um endurfjármögnun skammtímaláns Fjarðabyggðar. |
||
Gestir |
||
Fjármálastjóri - 08:30 |
||
2. |
1701123 - Kjarasamningur KÍ vegna FG - Vegvísir samstarfsnefndar SNS |
|
Samstarfsnefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara hafa lokið gerð vegvísis að aðgerðaráætlun samkvæmt bókun 1 í kjarasamningi aðila frá 29. nóvember sl. |
||
3. |
1602151 - Svæðisskipulag fyrir Austurland |
|
Drög að starfsreglum svæðisskipulagsnefndar lagðar fram til kynningar. |
||
4. |
1701131 - Stjórnenda og ráðningarkerfi H3 |
|
Framlagt minnisblað stjórnsýslu- og þjónustusviðs um innleiðingu stjórnendakerfis og ráðningarkerfis sem er hluti af H3 kerfi sem stjórnendur hafa þegar aðgang að. |
||
5. |
1411143 - Uppbygging ljósleiðaraneta í Fjarðabyggð og ríkisaðstoðarreglur EES |
|
Framlagt sem trúnaðarmál minnisblað um umsókn til Fjarskiptasjóðs fyrir ljósleiðaralagningu fyrir hluta Suðurfjarðar og Norðfjarðarsveitar. Niðurstaða í umsóknarferli fyrir A hluta er sú að Fjarðabyggð ásamt Fljótsdalshéraði, Djúpavogshreppi, Borgarfjarðarhreppi og Vopnafjarðarhreppi sækjast eftir styrkveitingum úr 65 milljóna kr. fjárveitingu sem er fyrir sambandssvæði SSA. |
||
6. |
1610078 - Leigulönd í Fjarðabyggð |
|
Framlagt bréf hestamanna og búfjáreigenda á Reyðarfirði sem fjallar um nýjar reglur um leigulönd í Fjarðabyggð og gjaldtöku fyrir afnot af leigulandi. |
||
7. |
1701124 - Eistnaflug 2017 |
|
Framlögð drög að samingi við Millifótakonfekt vegna framkvæmdar Eistnaflugs 2017. Bæjarráð samþykkir samning og felur bæjarstjóra undirritun hans. Ákvæði samningsins eru nánast þau sömu og á síðasta ári. Vísað til kynningar í menningar- og safnanefnd. |
||
8. |
1605155 - Framtíðarmöguleikar Sköpunarmiðstöðvarinnar |
|
Lögð fram drög að framlenging á samningi við Sköpunarmiðstöðina á Stöðvarfirði til loka ársins 2018. Bæjarráð samþykkir framlengingu á samningi og felur bæjarstjóra undirritun hans. Vísað til kynningar í menningar- og safnanefnd. |
||
9. |
1612108 - Vinnufatnaður í grunn- og leikskólum |
|
Framlögð drög að samningi auk minnisblaðs, um útfærslu fatnaðarmála í grunn- og leikskólum Fjarðabyggðar vegna starfsmanna Afl-starfsgreinafélags, Félags opinberra starfsmanna á Austurlandi og Starfsmannafélags Fjarðabyggðar. |
||
10. |
1505078 - 750 Bygging hafnarkants við frystigeymslu á Fáskrúðsfirði |
|
Framlagt minnisblað framkvæmdastjóra hafna frá 11.janúar s.l. vegna framkvæmda við hafnarkant á Fáskrúðsfirði. Eitt tilboð barst í verkið sem var yfir kostnaðaráætlun og samningar hafa lækkað tilboðsfjárhæð. |
||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:00.