mobile navigation trigger mobile search trigger
08.02.2018

51. fundur fræðslunefndar

haldinn í Molanum fundarherbergi 1, 7. febrúar 2018 og hófst hann kl. 16:30

Fundinn sátu:

Pálína Margeirsdóttir formaður, Elvar Jónsson aðalmaður, Kjartan Glúmur Kjartansson aðalmaður, Guðlaug Dana Andrésdóttir aðalmaður og Aðalheiður Vilbergsdóttir aðalmaður. 

Áheyrnarfulltrúi: Birgir Jónsson, skólastjóri

Fundargerð ritaði: Þóroddur Helgason, fræðslustjóri

 

Dagskrá:

 

1.

1801177 - Ósk um breytingu á skóladagatali - tilfærsla á starfsdegi

Fyrir liggur minnisblað frá fræðslustjóra þar sem fram kemur að beiðni hafi borist frá skólastjórnendum leikskólans Kærabæjar á Fáskrúðsfirði um breytingu á skóladagatali skólans. Óskað er eftir að skipulagsdagur sem átti að vera 17. apríl 2018 verði 3. apríl 2018. Búið er að bera breytinguna undir foreldraráð skólans sem hefur samþykkt hana fyrir sitt leyti. Ástæðan fyrir beiðninni er að ekki gerist þörf á skipulagsdegi 17. apríl vegna námsferðar starfsmanna eins og leit út fyrir og hentugra er fyrir bæði starfsmenn og foreldra að hafa skipulagsdag 3. apríl en þá er einnig starfsdagur í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar. Fræðslunefnd samþykkir beiðnina og biður leikskólastjóra að auglýsa breytinguna sem fyrst þannig að foreldrar geti gert viðeigandi ráðstafanir.

2.

1711030 - Skólanámskrár og starfsáætlanir

Teknar voru fyrir starfsáætlanir og skólanámskrár leik- og grunnskólanna í Fjarðabyggð fyrir skólaárið 2017-2018. Starfsáætlanir og skólanámskrár skólanna má finna á heimasíðum skólanna. Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi starfsáætlanir og skólanámskrár. Starfsáætlanir ársins 2018-2019 verða teknar fyrir í fræðslunefnd í september 2018.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:15