mobile navigation trigger mobile search trigger
20.02.2017

510. fundur bæjarráðs

Bæjarráð - 510. fundur  

haldinn í Molanum fundarherbergi 3, 20. febrúar 2017 og hófst hann kl. 08:30

Fundinn sátu Jón Björn Hákonarson Varaformaður, Eydís Ásbjörnsdóttir Aðalmaður, Valdimar O Hermannsson Varamaður og Gunnar Jónsson Embættismaður.

Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundurinn er símafundur haldinn í Neskaupstað, á Eskifirði og Reyðarfirði.

Dagskrá: 

1.

1702024 - Beiðni um fjárframlag fyrir Ungt Austurland

Framlögð beiðni um styrk til að halda byggðaráðstefnu Ungra Austfirðinga í apríl 2017. Óskað er eftir fjárframlagi að fjárhæð 705.000 kr. sem reiknað er sem hlutfall af íbúatölu sveitarfélaga á Austurlandi. Bæjarráð samþykkir að styrkja ráðstefnuna um 705.000 kr.   Tekið af liðnum óráðstafað 21690.

2.

1701059 - Fundargerðir stjórnar SSA 2017

Fundargerð stjórnarfundar frá 31.janúar 2017 lögð fram til kynningar.

3.

1702094 - Beiðni um styrk vegna málþinga um heilabilun

Framlagt erindi Alzheimersamtakann en þau hyggjast koma á fót námi í heilabilunarráðgjöf á Íslandi. Til að hefja umræðu um námið hyggjast samtökin halda málþing um land allt vorið 2017 og óskað er eftir styrk til þess.
Vísað til félagsmálanefndar.

4.

1702099 - Ósk um aðstöðu í fyrirhuguðu þjónustuhúsi Fjarðabyggðarhafna á Fáskrúðsfirði

Framlögð beiðni Björgunarsveitarinnar Geisla um aðstöðu í fyrirhuguðu þjónustuhúsi Fjarðabyggðarhafnar á Fáskrúðsfirði.
Bæjarráð tekur vel í erindið og vísar til afgreiðslu í hafnarstjórn.

5.

1702091 - Kauptilboð í Hæðargerði 6

Lagt fram kauptilboð frá Jóni Kristni Henrikssen í fasteignina Hæðargerði 6 á Reyðarfirði, fastanúmer 217-7217 að fjárhæð 11.025.000 kr. Kauptilboðið er samþykkt með fyrirvara um samþykki bæjarráðs. Óskað er eftir að bæjarráð samþykki kauptilboðið. Bæjarráð samþykkir kauptilboð og felur bæjarstjóra að undirrita skjöl vegna sölu eignarinnar.

6.

1702007F - Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 169

Framlögð til kynningar fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 16.febrúar 2017.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:00.