mobile navigation trigger mobile search trigger
27.03.2017

514. fundur bæjarráðs

Bæjarráð - 514. fundur  

haldinn í Molanum fundarherbergi 3, 27. mars 2017 og hófst hann kl. 08:30

Fundinn sátu Jens Garðar Helgason Formaður, Jón Björn Hákonarson Varaformaður, Eydís Ásbjörnsdóttir Aðalmaður, Gunnar Jónsson Embættismaður og Páll Björgvin Guðmundsson Bæjarstjóri.

Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Dagskrá: 

1.

1703164 - Ársreikningur Fjarðabyggðar og stofnana 2016 - TRÚNAÐARMÁL

Endurskoðandi Fjarðabyggðar gerði grein fyrir vinnu við ársreikning Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2016. Ársreikningur verður lagður fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn 6. apríl nk.

Gestir

Fjármálastjóri ásamt Magnúsi Jónssyni og Sigurjóni Ö Arnarssyni endurskoðendum. - 09:00

2.

1703168 - Fjárhagsáætlun 2017 - viðauki 3

Framlagður viðauki nr. 3 við fjárhagsáætlun 2017 um áhrif nýs kjarasamnings á laun stjórnenda og kennara tónlistarskóla.
Bæjarráð samþykkir viðauka fyrir sitt leyti og vísar honum til afgreiðslu bæjarstjórnar.

3.

1703120 - Stefnumótun í fiskeldismálum

Farið yfir stöðu fiskeldimála í Fjarðabyggð.

Gestir

Framkvæmdastjóri hafna ásamt formanni og varaformanni hafnarstjórnar - 10:00

4.

1005131 - Undirbúningsvinna vegna komu skemmtiferðaskipa

Vísað frá hafnarstjórn til bæjarráðs umræðu um komu skemmtiferðaskipa til Fjarðabyggðar.

Gestir

Framkvæmdastjóri hafna ásamt formanni og varaformanni hafnarstjórnar - 10:55

5.

1210191 - 755 Bankastræti 2 og 4 - Beiðni um að Fjarðabyggð leysi til sín lóð

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, innlausn og vísar endanlegri ákvörðun um innlausn lóðanna til bæjarráðs.
Lögð fram drög að afsölum vegna lóðanna við Bankastræti 2 og 4 á Stöðvarfirði en eigendur lóðanna hafa lýst yfir áhuga á að Fjarðabyggð leysi lóðirnar til sín þar sem þær verða ekki nýttar frekar.  Bæjarráð samþykkir að innleysa lóðirnar og felur bæjarstjóra undirritun skjala tengdum innlausninni.

6.

1703137 - 204.mál til umsagnar frumvarp til laga um Umhverfisstofnun (heildarlög),

Frumvarpið fjallar um hlutverk Umhverfisstofnunar og margvíslegt hlutverk hennar. Mikilvægt er að hlutverk Umhverfisstofnunar verði samþætt og tiltekið með skýrari hætti í löggjöf um stofnunina. Umsagnarfrestur er til 31.mars nk. Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.

7.

1611077 - Kynning á tillögu að kerfisáætlun 2016-2025 og umhverfisskýrslu

Orkustofnun óskar umsagna við tillögu að kerfisáætlun 2016 til 2025. Umsagnir óskast sendar fyrir 19.apríl nk.
Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.

8.

1703171 - Slóðir og smalavegir

Framlögð áskorun Félags leiðsögumanna um að sveitarfélög nýti það fjármagn sem fáanlegt er úr styrkvegasjóði til endurbóta á vegaslóðum vegna hreindýraveiða. Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.

9.

1703148 - Ársfundur Starfsendurhæfingar Austurlands - 31.mars 2017

Framlagt boð um ársfund Starfsendurhæfingar Austurlands sem haldinn verður 31. mars nk. kl. 14:30 að Miðvangi 1-3 Egilsstöðum ásamt fundargerðum stjórnar.
Bæjarráð felur Eydísi Ásbjörnsdóttur að fara með umboðið Fjarðabyggðar ársfundinum. Bæjarráð tilnefnir jafnframt Eydísi Ásbjörnsdóttur sem aðalmann og Huldu Sigrúnu Guðmundsdóttur sem varamann í stjórn.

10.

1703150 - Aðalfundur Sparisjóðs Austurlands - 4.apríl 2017

Aðalfundur Sparisjóðs Austurlands verður haldinn þriðjudaginn 4.apríl kl. 16:00 í Safnahúsinu í Neskaupstað.
Bæjarráð felur Páli Björgvini Guðmundssyni að fara með umboð Fjarðabyggðar á aðalfundinum.

11.

1703152 - Ráðstefna Ungs Austurlands 8.-9. apríl

Framlag boð á ráðstefnuna UngAust2017 sem haldin verður á Borgarfirði Eystri helgina 8. - 9.apríl nk. Þema ráðstefnunnar er byggðamál í víðu samhengi.
Bæjarráð fagnar framtaki Ungs Austurlands að halda ráðstefnuna. Bæjarráð hvetur kjörna fulltrúa Fjarðabyggðar til að taka þátt í ráðstefnunni.

12.

1610049 - Gjaldskrá fráveitu Fjarðabyggðar 2017

Breyting á gjaldskrá fráveitu lögð fram til samþykktar í bæjarráði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti tillögu fjármálastjóra um breytingu á gjaldskrá vegna lagabreytinga og vísar til staðfestingar bæjarráðs. Áður á dagskrá bæjarráðs 13.mars sl.
Bæjarráð samþykkir framlagðar breytingar á gjaldskránni.

 

13.

1610031 - Gjaldskrá vatnsveitu Fjarðabyggðar 2017

Breyting á gjaldskrá vatnsveitu lögð fram til samþykktar í bæjarráði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti tillögu fjármálastjóra um breytingu á gjaldskrá vegna lagabreytinga og vísar til staðfestingar bæjarráðs. Áður á dagskrá bæjarráðs 13.mars sl.
Bæjarráð samþykkir framlagðar breytingar á gjaldskránni.

14.

1702223 - Vatns- og holræsagjöld á ótengdar fasteignir - breyting á samþykkt um fráveitu á árinu 2017

Framlögð tillaga um breytingu á samþykkt um fráveitu Fjarðabyggðar vegna lagabreytinga. Breytingar hafa verið samþykktar í eigna- skipulags- og umhverfisnefnd og er vísað til samþykktar í bæjarráði.
Bæjarráð samþykkir breytingar á samþykkt um fráveitu Fjarðabyggðar og vísar staðfestingu hennar til bæjarstjórnar.

15.

1406125 - Nefndaskipan Fjarðalista 2014 - 2018

Fjarðalistinn skipar nýja varamenn í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd og íþrótta- og tómstundanefnd.
Kamma Dögg Gísladóttir tekur sæti sem varamaður í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd og Guðmundur Arnar Guðmundsson tekur sæti sem varamaður í íþrótta- og tómstundanefnd.

16.

1703005F - Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 171

Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 171 frá 20.mars 2017, lögð fram til kynningar.

17.

1703008F - Félagsmálanefnd - 93

Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 93 frá 21.mars 2017, lögð fram til kynningar.

Bókun - Formaður bæjarráðs tekur jákvætt í frumvarp til laga um breytingu á lögunm um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, sem kveður á um að fella út lágmarksútsvar. Tekur er undir með flutningsmönnum að ekki eigi að skylda sveitarfélög til að innheimta meiri gjöld af íbúum sínum en til þarf til að standa undir lögbundnum skuldbindingum sveitarfélagsins. Það á ekki að vera markmið sveitarfélaga að safna fjármunum umfram rekstur lögbundinna verkefna og veita íbúum góða þjónustu.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:00.