mobile navigation trigger mobile search trigger
08.05.2017

520. fundur bæjarráðs

Bæjarráð - 520. fundur  

haldinn í Molanum fundarherbergi 3, 8. maí 2017 og hófst hann kl. 08:30

Fundinn sátu Jens Garðar Helgason formaður, Jón Björn Hákonarson varaformaður, Eydís Ásbjörnsdóttir aðalmaður, Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri og Gunnar Jónsson embættismaður.

Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson. 

Páll Björgvin og Jón Björn voru í símasambandi við fund. 

Dagskrá: 

1.

1602039 - Almenningssamgöngur 2016

Framlagt erindi Strætisvagna Austurlands um skipulag almenningssamgangna á Austurlandi. Jafnframt lögð fram fundargerð 11.stjórnarfundar frá 4.maí.
Bæjarráð staðfestir þátttöku í skipulögðum samgöngum á Austurlandi.

2.

1610078 - Leigulönd í Fjarðabyggð

Samkvæmt samþykkt eigna- skipulags- og umhverfisnefndar er lagt til að gjaldskrá fyrir leigulönd verði numin úr gildi.
Bæjarráð samþykkir að í tengslum við breytingar á reglum um leigulönd í Fjarðabyggð verði gjaldskráin felld úr gildi.

3.

1606041 - Tillaga að fyrirkomulagi jarðgerðar

Framlögð drög að samningi við Íslenska Gámafélagið um jarðgerð og hirðu lífræns úrgangs. Í ágúst nk. verður bætt við brúnni tunnu og verður farið í sérstakt kynningarátak því tengdu. Jarðgerð fer fram á athafnasvæði verktaka á Reyðarfirði. Bæjarráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og vísar honum til afgreiðslu bæjarstjórnar.

4.

1705014 - 434.mál til umsagnar tillöga til þingsályktunar um stefnu og framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2017 - 2021

Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um stefnu og framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2017-2021, 434. mál. Umsögn berist eigi síðar en 12. maí nk.
Vísað til félagsmálanefndar.

5.

1705017 - 435.mál til umsagnar frumvarp til laga um jafna meðferð á vinnumarkaði

Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um jafna meðferð á vinnumarkaði, 435. mál. Umsögn berist eigi síðar en 10.maí nk.

6.

1705025 - 375.mál til umsagnar frumvarp til laga um sveitarstjórnarlög (fjöldi fulltrúa í sveitarstjórn),

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um sveitarstjórnarlög (fjöldi fulltrúa í sveitarstjórn), 375. mál. Umsögn berist eigi síðar en 12. maí nk.

7.

1705029 - 439.mál til umsagnar frumvarp til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga (innleiðing samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks, stjórnsýsla og húsnæðismál),

Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga(innleiðing samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks, stjórnsýsla og húsnæðismál), 439. mál. Umsögn berist eigi síðar en 12. maí nk.
Vísað til félagsmálanefndar.

8.

1705030 - 438. mál til umsagnar frumvarp til laga um þjónustu við fatlað fólk með miklar stuðningsþarfir,

Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um þjónustu við fatlað fólk með miklar stuðningsþarfir, 438. mál. Umsögn berist eigi síðar en 12.maí nk.  Vísað til félagsmálanefndar.

9.

1705039 - Ársreikningur Búseta 2016

Framlagður ársreikningur Búseta Norðfirði fyrir árið 2016 ásamt tölvupósti frá KPMG og gildandi skráningu félagsins í samvinnufélagaskrá. Bæjarráð staðfestir reikning fyrir sitt leyti og felur bæjarstjóra undiritun hans. Fjármálastjóra falið að vinna að málum félagsins áfram.

Gestir

Fjármálastjóri - 09:30

10.

1705041 - Ársreikningur Hitaveitu Fjarðabyggðar 2016

Framlagður sjálfstæður ársreikningur Hitaveitu Fjarðabyggðar fyrir árið 2016 til áritunar.  Bæjarráð staðfestir ársreikning með undirritun sinni.

11.

1705042 - Ársreikningur Rafveitu Reyðarfjarðar 2016

Framlagður sjálfstæður ársreikningur Rafveitu Reyðarfjarðar fyrir árið 2016 til áritunar. Bæjarráð staðfestir ársreikning með undirritun sinni.

12.

1705043 - Ársreikningur Eignarhaldsfélagsins Hrauns 2016

Framlagður sjálfstæður ársreikningur Eignarhaldsfélagsins Hrauns ehf. til áritunar og einnig fyrir stjórn eignarhaldsfélagsins Hrauns ehf.
Bæjarráð staðfestir ársreikning með undirritun sinni.

13.

1702075 - Fundagerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2017

Ársreikningur Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga fyrir árið 2016 lagður fram til kynningar.  Bæjarráð samþykkir ársreikninginn fyrir sitt leyti.

14.

1702120 - Fullnaðarafgreiðslur embættismanna og prókúra 2017

Framlagðar breytingar á reglum um fullnaðarafgreiðslur embættismanna.
Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar til staðfestingar bæjarstjórnar.

16.

1704011F - Íþrótta- og tómstundanefnd - 34

Fundargerð íþrótta- og tómstundanefnar, nr.34 frá 27.apríl 2017, lögð fram til kynningar.

15.

1704013F - Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 175

Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr.175 frá 2.maí 2017, lögð fram til kynningar.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00.