mobile navigation trigger mobile search trigger
29.05.2017

523. fundur bæjarráðs

Bæjarráð - 523. fundur  

haldinn í Molanum fundarherbergi 3, 29. maí 2017 og hófst hann kl. 08:30

Fundinn sátu Jón Björn Hákonarson Varaformaður, Eydís Ásbjörnsdóttir Aðalmaður, Valdimar O Hermannsson Varamaður, Páll Björgvin Guðmundsson Bæjarstjóri og Gunnar Jónsson Embættismaður.

Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Dagskrá:

1.

1705194 - Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2018

Lögð fram tillaga fjármálastjóra að reglum fyrir fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árin 2018 - 2021.  Einnig lögð fram tillaga fjármálastjóra að drögum fyrir fjárhagsramma að fjárhagsáætlun ársins 2018. Bæjarstjóri og forseti bæjarstjórnar munu fara yfir tímaáætlun fyrir fund bæjarstjórnar.  Bæjarráð vísar reglum um fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2018 til 2021 til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Þá felur bæjarráð bæjarstjóra að yfirfara ramma að fjárhagsáætlun 2018 og leggja fyrir bæjarráð að nýju.

Gestir

Fjármálastjóri - 11:25

2.

1703147 - Breytingar á A deild Brúar lífeyrissjóðs - taka gildi 1. júní nk.

Fjármálastjóri gerði grein fyrir stöðu endurmats á skuldbindingum Brúar lífeyrissjóðs.

Gestir

Fjármálastjóri - 11:30

3.

1705198 - Bókhaldsleg meðferð uppgjörs lífeyrisskuldbindinga í A-deild Brúar og umfjöllun um opinber fjármál

Framlagður tölvupóstur framkvæmdastjóra Sambambands íslenskra sveitarfélag ásamt erindi til ráðherra sveitarstjórnarmála um breytingu á reglugerð um bókhald sveitarfélaga og fjármálareglur þeirra vegna uppgjörs á lífeyrisskuldbindingum við A deild Brúar lífeyrissjóðs.

Gestir

Fjármálastjóri - 11:40

4.

1612093 - Útboð á skólamáltíðum í grunnskólum 2017

Framlagt minnisblað fjármálastjóra og fræðslustjóra vegna útboðs á skólamáltíðum. Fræðslunefnd hefur lagt til að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda og jafnframt að fjárhagsrammi fræðslumála verði aukinn sem nemur kostnaðarauka vegna samnings.  Bæjarráð staðfestir töku tilboðs lægstbjóðanda, Fjarðaveitinga. Þá leggur bæjarráð áherslu á að fylgt verði áherslum í útboði sem varðar manneldisáform, gæði og uppskriftir hráefnis.
Bæjarráð felur fræðslunefnd að fara nánar yfir kostnaðarauka vegna útboðsins og fjármögnun hans og gera tillögu til bæjarráðs um hvernig honum verði mætt.

Gestir

Fræðslustjóri - 10:45

5.

1410115 - Norðfjarðarflugvöllur - klæðning

Framlögð kostnaðaráætlun fyrir klæðningu flughlaðs Norðfjarðarflugvallar. Búið er að fara yfir hönnun og gera smávægilegar breytingar á uppbyggingu sem hafa ekki áhrif á gæði flughlaðsins. Kostnaður er metinn um tíu milljónir kr.
Bæjarráð samþykkir að ráðist verði í framkvæmdina og felur bæjarstjóra að ganga frá fjármögnun verkefnisins í samstarfi við samráðsaðila. Þá þakkar bæjarráð Héraðsverki framlag sitt í gerð flughlaðs vegna þessa mikilvæga verkefnis í heilbrigðisþjónustu fjórðungsins.

Gestir

Sviðsstjóri framkvæmda- og umhverfissviðs. - 08:55

6.

1701123 - Kjarasamningur KÍ vegna FG - Vegvísir samstarfsnefndar SNS

Lagðar fram úrbótaáætlanir grunnskólanna í Fjarðabyggð í tengslum við Bókun 1 (2016) í kjarasamning KÍ vegna FG sem gildir frá 1. desember 2016 til 30. nóvember 2017. Viðhaldsmálum og endurbótum á húsnæði var vísað til eigna- skipulags- og umhverfisnefndar til skoðunar í tengslum við viðhaldsáætlun ársins 2017. Í minnisblaði er farið yfir kostnað við þær framkvæmdir sem eru í úrbótaáætlunni á þessu ári og hvað var sett í viðhald á hverja stofnun á þessu fjárhagsári. Nauðsynlegar endurbætur sem aðallega tengjast hljóðvistarmálum eru metnar allt að 25 milljónum kr. Þá tengjast hljóðvistarmál beinum hætti fjölskyldustefnu Fjarðabyggðar.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur yfirfarið og samþykkt áætlunina.
Bæjarráð samþykkir úrbótaáætlun og hún verði fjármögnuð af óráðstöfuðu fé Eignasjóðs Fjarðabyggðar, arði af Lánasjóði sveitarfélaga og tilfærslu verkefna.

Gestir

Fræðslustjóri ásamt sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs. - 08:30

7.

1705202 - Tæknidagur fjölskyldunnar 2017

Framlagt erindi Verkmenntaskóla Austurlands. Tæknidagur fjölskyldunnar verður haldinn í fimmta sinn laugardaginn 7.október nk. í Verkmenntaskóla Austurlands. Dagskráin fer fram í húsnæði skólans en einnig hefur íþróttahúsið í Neskaupstað verið leigt til þess að rúma dagskrána. Farið er þess á leit við bæjarráð Fjarðarbyggðar að sveitarfélagið styrki Tæknidaginn með því að fella niður leigu og ræstingarkostnað íþróttahússins.
Bæjarráð samþykkir að styrkja Verkmenntaskólann sem nemur leigu og þrifum íþróttahússins. Vísað til íþrótta- og tómstundafulltrúa. Jafnframt leggur bæjarráð til að Fjarðabyggðahafnir, veitur sveitarfélagsins og sorpmiðstöð taki þátt í tæknideginum og kynni starfsemi sína. Bæjarráð felur sviðsstjórum að undirbúa þátttökuna í samstarfi við upplýsingafulltrúa.

8.

1602034 - Forvarnar- og öryggismál

Lögð fram greinargerð um störf forvarnar- og öryggisnefndar. Farið yfir tjón og slys á árinu 2016 og reynslu af forvarnarstarfi og öryggismálum.
Bæjarráð felur forstöðumanni stjórnsýslu- og bæjarritara að fylgja eftir forvarnarmálum í samræmi við samning við Vátryggingarfélagið.

Gestir

Forstöðumaður stjórnsýslu ásamt Gísla Níls Einarssyni - 09:50

9.

1704106 - Arðgreiðsla 2017 - Lánasjóður sveitarfélaga ohf

Lögð fram til kynningar arðgreiðsla Lánasjóðs sveitarfélaga 2017. Arðgreiðsla sjóðsins nemur 11.764.360 kr. að frádregnum fjármagnstekjuskatti.
Bæjarráð samþykkir að arðurinn verði nýttur til úrbóta á húsnæði skóla sbr. dagskrárliður 6.

10.

1705057 - Aðalfundur SSA 2017

Framlagður tölvupóstur Sambands sveitarfélaga á Austurlandi þar sem boðað er til aðalfundur SSA dagana 29. og 30. september nk. á Breiðdalsvík.
Forstöðumanni stjórnsýslu falið að undirbúa þátttöku fulltrúa Fjarðabyggðar á aðalfundinum.

11.

1702019 - Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2017

Framlögð til kynningar 850. fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.

12.

1702024 - Málefni Ungs Austurlands

Farið yfir málefni Ungs Austurlands og ráðstefnu UngAust2017 sem haldinn var 8. og 9. apríl 2017 á Borgarfirði eystra.
Bæjarráð fagnar framtaki samtakanna. Íþrótta- og tómstundafulltrúi er tilnefndur tengiliður við samtökin fyrir hönd sveitarfélagsins ásamt upplýsingafulltrúa.

Gestir

Margrét Árnadóttir og Ásta Hlín Magnúsdóttir - 09:15

13.

1602033 - Reglur Fjarðabyggðar um úthlutun tíma í íþróttamannvirkjum til íþróttafélaga og almennings

Fyrir liggja reglur Fjarðabyggðar um úthlutun tíma í íþróttamannvirkjum til íþróttafélaga og almennings. Íþrótta- og tómstundanefnd samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar í bæjarráði.
Bæjarráð staðfestir reglurnar.

14.

1705015F - Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 177

Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 177 frá 22.maí 2017, lögð fram til kynningar.

15.

1705010F - Íþrótta- og tómstundanefnd - 35

Fundargerð íþrótta- og tómstundanefnar, nr. 35 frá 18.maí 2017, lögð fram til kynningar.

16.

1705017F - Fræðslunefnd - 41

Fundargerð fræðslunefndar, nr. 41 frá 24.maí 2017, lögð fram til kynningar.

17.

1705013F - Hafnarstjórn - 180

Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 180 frá 24.maí 2017, lögð fram til kynningar.

18.

1701220 - Barnaverndarfundagerðir 2017

Fundargerð barnaverndarnefndar, nr.73 frá 18.maí 2017, lögð fram til kynningar.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:00.