Bæjarráð - 529. fundur
haldinn í Molanum fundarherbergi 3, 14. ágúst 2017 og hófst hann kl. 10.15
Fundinn sátu Jens Garðar Helgason Formaður, Jón Björn Hákonarson Varaformaður, Esther Ösp Gunnarsdóttir Varamaður, Gunnar Jónsson Embættismaður og Gunnlaugur Sverrisson Embættismaður.
Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Dagskrá:
1. |
1705194 - Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2018 |
|
Framlagt minnisblað fjármálastjóra um forsendur fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar fyrir árið 2018. Umræða um forsendur áætlunarinnar. Vísað til áframhaldandi vinnu við áætlunargerðina. |
||
Gestir |
||
Fjármálastjóri - 10:20 |
||
2. |
1707041 - Aðild að rammasamningum 2017 |
|
Fyrir liggur boð um aðildarumsókn að rammasamningum Ríkiskaupa en Fjarðabyggð hefur verið aðili að rammasamningum undanfarin ár. Nú hefur fyrirkomulaginu verið breytt og einnig gjalddtökunni með nýjum lögum um opinber innkaup. Aðildargjald ársins 2017 að rammasamningi fyrir Fjarðabyggð er kr. 1.240.000. Bæjarráð samþykkir aðild að rammasamningi en felur fjármálaastjóra að kalla eftir frekari útlistun frá Ríkiskaupum á breyttu fyrirkomulagi. |
||
Gestir |
||
Fjármálastjóri - 10:38 |
||
3. |
1704074 - Öryggismál og eldvarnir jarðganga |
|
Áframhaldandi umræða frá fundi bæjarráðs 10. júlí sl. Framlagt minnisblað slökkviliðsstjóra vegna kaupa á búnaði í Norðfjarðargöng. |
||
Gestir |
||
Slökkviliðsstjóri og fjármálastjóri- 10:47 |
||
|
||
Jón Björn Hákonarson vék af fundi kl.11:30 við afgreiðslu og umfjöllun liðar um nytjarétt í Búlandsborgum.
|
||
4. |
1705243 - Nytjaréttur af æðarvarpi á jörðinni Búlandsborg á Norðfirði |
|
Bókun fulltrúa Fjarðalistans. "Auglýsing Fjarðabyggðar um nytjarétt af æðavarpi á jörðinni Búlandsborg var óskýr og leiddi til þess að þau tilboð sem bárust voru að mati lögfræðings sveitarfélagsins ekki samanburðarhæf. Leggur Fjarðalistinn til að öllum tilboðum verði hafnað vegna þessa galla og auglýst verði aftur þar sem skýrt verði kveðið á um hvað skuli felast í tilboðinu, þ.e. hvort leigutaki beri alla fjárhagslega ábyrgð á rekstri æðavarpsins sjálfur eða í hlutfalli við sveitarfélagið og hvort um hlutfall af tekjum eða fasta krónutölu leiguverðs á ári sé að ræða."
Bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokks. “Fulltrúi Fjarðalistans í bæjarráði fól bæjarstjóra að ganga frá málinu. Í ljósi þeirrar stefnubreytingar sem orðið hefur á afstöðu Fjarðalistans frá fyrri fundum, ákveður formaður bæjarráðs að fresta afgreiðslu málsins til næsta fundar þar sem fulltrúi Framsóknarflokksins mun þá sitja fundinn.” |
||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:20