mobile navigation trigger mobile search trigger
22.03.2018

53. fundur fræðslunefndar

haldinn í Molanum fundarherbergi 3, 21. mars 2018 og hófst hann kl. 16:30

Fundinn sátu:

Pálína Margeirsdóttir formaður, Elvar Jónsson aðalmaður, Kjartan Glúmur Kjartansson aðalmaður, Guðlaug Dana Andrésdóttir aðalmaður, Gerður Ósk Oddsdóttir, áheyrnarfulltrúi, Þóroddur Helgason fræðslustjóri og Bryndís Guðmundsdóttir áheyrnarfulltrúi.

Fundargerð ritaði: Þóroddur Helgason

Dagskrá:

1.

1803011 - Öryggisstefna

Framlögð drög að uppfærðri upplýsingaöryggisstefnu sem leysir af hólmi eldri upplýsingaöryggisstefnu frá 2013. Stefnunni er ætlað að mæta kröfum sem ný persónuverndarlöggjöf krefur og reglugerð Evrópusambandsins áskilur að aðildarlönd þeirra innleiði. Bæjarráð hefur samþykkt stefnuna, fyrir sitt leyti og vísað henni til afgreiðslu bæjarstjórnar. Stefnunni var jafnframt vísað til kynningar í nefndum sveitarfélagsins. Lagt fram til kynningar.

2.

1803012 - Útvistunarstefna

Framlögð drög að útvistunarstefnu upplýsingatæknimála ásamt minnisblaði. Með drögum þessum er skýrð heimild til útvistunar á rekstri upplýsingatæknikerfa til samræmis við ákvæði nýrra persónuverndarlaga og reglugerðar Evrópusambandsins um aukna persónuvernd. Bæjarráð samþykkti stefnuna fyrir sitt leyti og vísaði henni til afgreiðslu bæjarstjórnar. Stefnunni var jafnframt vísað til kynningar í nefndum sveitarfélagsins. Lagt fram til kynningar.

3.

1803048 - Skóladagatöl 2018-2019

Fyrir liggja skóladagatöl leik-, grunn- og tónlistarskóla í Fjarðabyggð þar sem sést hvernig starfs-, skipulags- og vetrarfrídagar raðast niður á almanaksárið. Reynt er að samræma frídaga nemenda í hverjum byggðarkjarna eftir því sem kostur er og tekst það að mestu. Fræðslunefnd frestar afgreiðslu skóladagatals Stöðvarfjarðarskóla til næsta fundar nefndarinnar, en samþykkir önnur skóladagatöl.

4.

1803047 - Læsisstefna Fjarðabyggðar

Fræðslunefnd ræddi um fyrirhugaða vinnu við læsisstefnu Fjarðabyggðar. Fyrir lá minnisblað frá fræðslustjóra þar sem m.a. er fjallað um vinnu sem fram hefur farið í tengslum við læsissáttmálann sem undirritaður var haustið 2015. Þar er m.a. minnst á samstarfsverkefni með öðrum skólum á Austurlandi, aukna kennsluráðgjöf við Skólaskrifstofu Austurlands, áherslu á snemmtæka íhlutun í bæði leik- og grunnskólum, þróunarverkefni tengdum lestri og leiðbeinandi skimunum. Fræðslustjóri greindi frá hugmyndum um það hvernig best væri staðið að vinnu við læsisstefnu, m.a. samstarfi við Skólaskrifstofu Austurlands og Miðstöð skólaþróunar Háskólans á Akureyri. Fræðslunefnd tekur undir hugmyndirnar og felur fræðslustjóra að vinna málið áfram. Stefnt er að því að ljúka við læsisstefnuna á árinu 2018.

5.

1611104 - Húsnæðisstefna Fjarðabyggðar

Framlagt minnisblað og drög húsnæðisstefnu Fjarðabyggðar sem trúnaðarmál, fyrir síðari umræðu í bæjarstjórn. Bæjarráð samþykkir að vísa húsnæðisstefnu til umfjöllunar í nefndum sveitarfélagsins og því næst til lokaafgreiðslu bæjarstjórnar við síðari umræðu 22. mars 2018. Engar athugasemdir gerðar.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:30