Bæjarráð - 533. fundur
haldinn í Molanum fundarherbergi 3, 11. september 2017 og hófst hann kl. 08:30
Fundinn sátu Jón Björn Hákonarson varaformaður, Eydís Ásbjörnsdóttir aðalmaður, Valdimar O Hermannsson varamaður, Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri og Gunnar Jónsson embættismaður.
Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Dagskrá:
1. |
1709025 - Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2018 - Bæjarráð |
|
Farið yfir úthlutaða fjárhagsramma málaflokkanna sameiginlegs kostnaðar, atvinnumála fyrir árið 2018 sem undir ráðið heyra og heilbrigðismál. |
||
Gestir |
||
Fjármálastjóri - 08:30 |
||
2. |
1709059 - Fjárheimild í fjárhagsáætlun 2018 - Slökkvilið |
|
Farið yfir úthlutaða fjárhagsramma fyrir slökkvilið Fjarðabyggðar. |
||
Gestir |
||
Fjármálastjóri og slökkviliðsstjóri - 09:30 |
||
3. |
1709039 - Kauptilboð í Bleiksárhlíð 2-4 3H |
|
Lagt fram kauptilboð í íbúð nr. 0304, 217-0089 að Bleiksárhlíð 2-4 á Eskifirði frá Launafl hf. |
||
Gestir |
||
Fjármálastjóri - 09:20 |
||
4. |
1709032 - Undirbúningur hafinn að landsátakinu Ísland ljóstengt vegna 2018 |
|
Framlögð til kynningar tilkynning frá Innanríkisráðuneytinu um að hafinn sé undirbúningur fyrir næsta áfanga landsátaksins Ísland ljóstengt. Gert er ráð fyrir að tilkynnt verði um úthlutun byggðastyrks vegna 2018 fyrir miðjan september. Áhugasöm sveitarfélög eru hvött til þess að leggja drög að umsóknum hið fyrsta. |
||
5. |
1702019 - Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2017 |
|
Fundargerð stjórnar sambandsins frá 1.september sl. lögð fram til kynningar. |
||
6. |
1701059 - Fundargerðir stjórnar SSA 2017 |
|
Fundargerðir stjórnar SSA frá 5.júlí og 29.ágúst 2017, lagðar fram til kynningar. |
||
7. |
0903071 - Snjóflóðavarnir Tröllagili Norðfirði |
|
Lögð fram dagskrá vegna vígslu varnargarða í Neskaupstað 19.september nk. |
||
8. |
1705102 - Húsvarsla í Valhöll Eskifirði |
|
Bæjarráð vísar samningi um húsvörslu við Vini Valhallar til bæjarstjóra til úrvinnslu. |
||
9. |
1406125 - Nefndaskipan Fjarðalista 2014 - 2018 |
|
Fjarðalistinn skipar Magna Harðarson í stað Estherar Aspar Gunnarsdóttur sem varamanns í hafnarstjórn. |
||
10. |
1709002F - Fræðslunefnd - 44 |
|
11. |
1709003F - Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 184 |
|
Fiskeldismál í Fjarðabyggð
Nú í sumar var áhættumat Hafrannsóknarstofnunar kynnt og dró matið stórlega úr leyfilegu fiskeldi í fjörðum Fjarðabyggðar meðal annars. Forsenda matsins er varúðarsjónarmið vegna Breiðdalsár en frekari rannsóknir þurfi að liggja fyrir áður en endurmat getur átt sér stað á Breiðdalsá.
Fiskeldi getur orðið ein af burðarstoðum atvinnulífs á Austfjörðum, ekki síst í þeim byggðarkjörnum sem átt hafa undir högg að sækja undanfarin ár, og því er mjög mikilvægt að ráðist verði í frekari rannsóknir á Breiðdalsá nú þegar. Því skorar bæjarráð Fjarðabyggðar á hagsmunaaðila og Hafrannsóknarstofnun að vinna saman að því að finna verkefninu fjármagn til að hægt sé að eyða þeirri óvissu sem nú er uppi sem fyrst með auknum rannsóknum. Fyrir íbúa Fjarðabyggðar sem og íbúa Austfjarða eru hundruðir starfa undir og framtíðaruppbygging fyrir samfélögin. Þá bendir bæjarráð á að sveitarfélagið hefur samþykkt stefnumótun þar sem lögð er áhersla á að uppbygging fiskeldis fari fram á grundvelli sjálfbærrar nýtingar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:00.