mobile navigation trigger mobile search trigger
18.09.2017

534. fundur bæjarráðs

Bæjarráð - 534. fundur  

haldinn í Molanum fundarherbergi 3, 18. september 2017 og hófst hann kl. 08:30

Fundinn sátu Jens Garðar Helgason Formaður, Jón Björn Hákonarson Varaformaður, Eydís Ásbjörnsdóttir Aðalmaður, Páll Björgvin Guðmundsson Bæjarstjóri og Gunnar Jónsson Embættismaður. 

Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson. 

Dagskrá: 

1.

1706013 - Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 2018 ásamt langtímaáætlun

Farið yfir úthlutaða fjárhagsramma fyrir hafnarsjóð Fjarðabyggðar.
Vísað til framkvæmdastjóra hafna til úrvinnslu.

Gestir

Framkvæmdastjóri hafna og fjármálastjóri - 09:00

2.

1709029 - Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2018 - Menningar- og safnanefnd

Farið yfir úthlutaða fjárhagsramma fyrir menningarmál.
Vísað til bæjarritara til úrvinnslu.

Gestir

Fjármálastjóri - 08:45

3.

1709028 - Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2018 - Fræðslunefnd

Farið yfir úthlutaða fjárhagsramma fyrir fræðslumál.
Vísað til fræðslustjóra til úrvinnslu.

Gestir

Fræðslustjóri og fjármálastjóri - 08:30

4.

1709097 - Fjárhagsáætlun 2017 - viðauki 6

Lögð fram tillaga að viðauka 6 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar árið 2017. Viðaukinn snýr að auknum útgjöldum vegna námsgagnakaupa, almenningssamgangna og bifreiðakaupa.
Bæjarráð samþykkir viðaukann og vísar honum til bæjarstjórnar til staðfestingar.

Gestir

Fjármálastjóri - 09:20

5.

1709080 - Forsendur fyrir vinnslu fjárheimilda fyrir árið 2018 og fjárhagsáætlun til þriggja ára

Lagt fram til kynningar minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga um forsendur fyrir vinnslu fjárheimilda fyrir árið 2018.
Vísað til fjármálastjóra.

Gestir

Fjármálastjóri - 09:25

6.

1709072 - Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2017/2018.

Sveitarfélögum er gefinn kostur á að sækja um byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2017/2018 á grundvelli 10. gr. laga nr. 116/2006 sem hafa orðið fyrir skerðingu aflaheimilda. Umsóknarfrestur um byggðakvóta fiskveiðiársins 2017 til 2018 er til 15.október nk.
Bæjarráð samþykkir að sótt verði um byggðakvóta og felur bæjarstjóra að senda inn umsókn.

7.

1708073 - Ljósleiðaravæðing í dreifbýli Fjarðabyggðar

Lögð fram til kynningar drög að bréfum til Mílu ehf. og Póst- og fjarskiptastofnunar vegna erindis Mílu um ljósleiðaralagningu um Suðurfirði. Erindi til Póst- og fjarskiptastofnunar felur í sér beiðni um umsögn samnings og bréfs Mílu.

8.

1709088 - Styrkbeiðni vegna þorrablóts Reyðfirðinga

Framlögð beiðni um styrk vegna kaupa á búnaði í íþróttahúsið á Reyðarfirði vegna þorrablóts. Um er að ræða tjöld sem kosta 558.000 kr.
Bæjarráð samþykkir að styrkja búnaðarkaup um 250.000 kr. Bæjarstjóra falið að afgreiða erindi.

9.

1709093 - Skammtímaleiga á Hulduhlíð Eskifirði

Framlagður tölvupóstur frá Ernu Þorsteinsdóttur f.h Eskju, um tímabundna leigu á húsnæði gömlu Hulduhlíðar, vegna óvæntra aðstæða.
Bæjarráð samþykkir að heimila leigu af húsnæðinu að því gefnu að öll tilskilin leyfi liggi fyrir og að annað gistirými á Eskifirði og nágrenni sem sinnt getur þörfum fyrirtækisins sé fullnýtt. Bæjarstjóra falið að ganga frá samningi en drög að honum liggja fyrir fundinum.

Gestir

Fjármálastjóri - 09:30


Jens Garðar Helgason vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu dagskrárliðar.

10.

1705243 - Nytjaréttur af æðarvarpi á jörðinni Búlandsborg á Norðfirði

Umræðu framhaldið um ráðstöfun á nýtjarétti æðavarps í Búlandsborgum á Norðfirði. Á fundi bæjarráðs 24. júlí sl. var bæjarstjóra falið að vinna málið áfram, ræða við hæstbjóðendur og ganga frá samningi um nytjaréttinn. Málinu var frestað á fundi bæjarráðs 14.ágúst. Lagt fram bréf Sigurðar Rúnars Ragnarssonar frá 30. ágúst er varðar málið ásamt álitsgerðum lögmanns.  Á fundi bæjarráðs þann 14.ágúst var ákveðið að fresta afgreiðslu málsins og er það nú tekið fyrir að nýju. Bæjarráð samþykkir að hafna öllum tilboðum í nytjarétt af æðarvarpi á jörðinni Búlandsborgum á Norðfirði en í auglýsingu um nytjaréttinn áskilur sveitarfélagið sér rétt til að hafna öllum tilboðum. Það er álit bæjarráðsins að það þjóni hagsmunum sveitarfélagins best að óska eftir tilboðum í nytjaréttinn á nýjan leik á þeirri forsendu að skilmálar liggi fyrir með skýrari hætti í upphafi. Þá hafa komið fram athugasemdir við málsmeðferðina og telur bæjarráð, að þó ekkert hafi komið fram sem raskað hafi jafnræði með tilboðsgjöfum, verði málsmeðferðin að vera hafin yfir allan vafa. Bæjarstjóra er falið að auglýsa eftir tilboðum í nytjarétt æðarvarpsins á Búlandsborgum á Norðfirði að nýju.

Þá er tekið fyrir bréf Sigurðar Rúnars Ragnarssonar frá 30.ágúst. Með vísan til bókunar bæjarráðs hér að framan er tilboði Sigurðar Rúnars í nytjaréttinn hafnað.


Við umfjöllun og afgreiðslu dagskrárliðar vék Jón Björn Hákonarson af fundi og Pálína Margeirsdóttir tók sæti hans.

11.

1709106 - Erindi frá framkvæmdastjóra hafna

Fyrir liggur bréf Steinþórs Péturssonar framkvæmdastjóra Fjarðabyggðarhafna, þar sem Steinþór tilkynnir að hann hafi ákveðið að láta af störfum og hverfi til annara starfa. Bæjaráð vill óska Steinþóri velfarnaðar á nýjum vettvangi um leið og honum eru þökkuð störf á vettvangi sveitarfélagsins og framlag sitt til uppbyggingar og framgang þess. Bæjarstjóra er falið að auglýsa stöðu framkvæmdastjóra Fjarðabyggðarhafna í samráði við hafnarstjórn.

12.

1709010F - Fræðslunefnd - 45

Fundargerð fræðslunefndar, nr. 45 frá 13.september 2017, lögð fram til kynningar.

13.

1709008F - Hafnarstjórn - 183

Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 183 frá 12.september 2017, lögð fram til kynningar.

14.

1709007F - Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 185

Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 185 frá 11.september 2017, lögð fram til kynningar.

15.

1709005F - Menningar- og safnanefnd - 34

Fundargerð menningar- og safnanefndar, nr. 34 frá 13.september 2017, lögð fram til kynningar.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:30.