mobile navigation trigger mobile search trigger
03.10.2017

536. fundur bæjarráðs

Bæjarráð - 536. fundur  

haldinn í Molanum fundarherbergi 3, 28. september 2017 og hófst hann kl. 08:30

 

Fundinn sátu:

Jens Garðar Helgason formaður, Jón Björn Hákonarson varaformaður, Eydís Ásbjörnsdóttir aðalmaður, Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri og Gunnar Jónsson embættismaður.

 

Fundargerð ritaði:  Gunnar Jónsson

 

Dagskrá:

 

1.

1709130 - Alþingiskosningar 2017

Framlögð fundargerð yfirkjörstjórnar 25. september s.l.
Yfirkjörstjórn leggur til að kjördeildir verði 6.
Mjóifjörður, kjördeild Sólbrekku
Neskaupstaður, kjördeild Nesskóla
Eskifjörður, kjördeild Tónlistarmiðstöð
Reyðarfjörður, kjördeild Safnaðarheimili
Fáskrúðsfjörður, Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar
Stöðvarfjörður, Stöðvarfjarðarskóli
Kjörstaðir verði opnir milli 09:00 og 22:00 nema í Mjóafirði þar sem opið verði milli 09:00 til 14:00 eða 17:00.
Bæjarráð samþykkir tillögu yfirkjörstjórnar um kjördeildir í Fjarðabyggð vegna Alþingiskosninga 28. október n.k. og opnunartíma þeirra.

2.

1709185 - Ósk um kaup á Veturhúsum

Framlagt bréf Péturs Karls Kristinssonar þar sem óskað er eftir kaupum á hlut Fjarðabyggðar í Veturhúsum ehf.
Bæjarráð samþykkir að hlutur Fjarðabyggðar verði seldur og felur bæjarritara að vinna málið áfram og leggja fyrir bæjarráð að nýju.

3.

1411139 - Afnotasamningur við landeigendur Skíðasvæðisins í Oddsskarði

Lögð fram drög að nýjum samningi um leigu á landi undir starfsemi Skíðamiðstöðvarinnar í Oddsskarði en landeigendur Högnastaða og Sellátra hafa óskað eftir endurskoðun núverandi samninga.
Lagt fram minnisblað skipulags- og byggingarfulltrúa, dagsett 14. september 2017, ásamt tillögu að afmörkun skíðasvæðisins.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir samninga og vísar þeim til staðfestingar bæjarráðs. Jafnframt samþykkir nefndin, að höfðu samráði við landeigendur, að deiliskipulag verði unnið fyrir svæðið.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga til samninga við landeigendur og leggja fyrir bæjarráð að nýju til staðfestingar.

4.

1709187 - Arctic Circle þingin í Hörpu 13.-15. október

Framlögð til kynningar fréttatilkynning um Þing Arctic Circle þar sem verða 135 málstofur með 600 ræðumönnum og fyrirlesurum. Haldið 13. til 15. október n.k.
Bæjarstjóra mun sækja ráðstefnu ásamt atvinnu- og þróunarstjóra.

5.

1709039 - Kauptilboð í Bleiksárhlíð 2-4 3H

Framlagt samþykkt kauptilboð í 5 herb. íbúð á 3ju hæð í Bleiksárhlíð 2-4 á Eskifirðir við Launafl ehf. Söluverð íbúðarinnar er 15 m.kr. sbr. samþykkt bæjarráðs frá 25.9. 2017.
Bæjarráð samþykkir kauptilboðið að fjárhæð 15.000.000 kr. og felur bæjarstjóra að ganga frá skjölum vegna kaupanna.

6.

1710001 - Aðalfundur samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum 6. október

Framlagt aðalfundarboð Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum 6. október n.k.
Bæjarráð samþykkir að Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri fari með umboð Fjarðabyggðar á aðalfundinum.

7.

1703014 - Málefni og áherslur HSA á árinu 2017

Málefni Heilbrigðisstofunar Austurlands rædd.

Gestir

Guðjón Hauksson forstjóri og Nína Hrönn Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar - 09:10

8.

1611029 - Viðbygging við leikskólann Lyngholt

Bæjarráð samþykkir að fela fræðslustjóra og sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs að leggja fyrir bæjarráð útfærða valkosti í húsnæðismálum Leikskólans Lyngholts vegna fjölgunar á leikskólarýmum til að bregðast við þörf vegna fjölgunar barna á leikskólaaldri á Reyðarfirði.

9.

1706018 - Starfs- og fjárhagsáætlun 2018 íþrótta- og tómstundanefnd

Farið yfir áherslur í íþrótta- og tómstundamálum í fjárhagsáætlun fyrir árið 2018 með formanni íþrótta- og tómstundarnefndar, fræðslustjóra og íþrótta- og tómstundafulltrúa.
Vísað til áframhaldandi fjárhagsáætlunargerðar 2018.

Gestir

Formaður íþrótta- og tómstundanefndar, fræðslustjóri, íþrótta- og tómstundafulltrúi ásamt fjármálastjóra - 09:45

10.

1709026 - Fjárheimilidir í fjárhagsáætlun 2018 - Félagsmálanefnd

Farið yfir áherslur í félagsþjónustu í fjárhagsáætlun fyrir árið 2018 með formanni félagsmálanefndar og félagsmálastjóra.
Vísað til áframhaldandi fjárhagsáætlunargerðar 2018.

Gestir

Formaður félagsmálanefndar og félagsmálastjóri ásamt fjármálastjóra - 10:30

11.

1709027 - Fjárheimilidir í fjárhagsáætlun 2018 - Barnaverndarnefnd

Farið yfir áherslur í barnaverndarmálum í fjárhagsáætlun fyrir árið 2018 með formanni barnaverndarnefndar og félagsmálastjóra.
Vísað til áframhaldandi fjárhagsáætlunargerðar 2018.

Gestir

Formaður barnaverndarnefndar og félagsmálastjóri ásamt fjármálastjóra. - 11:10

12.

1709028 - Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2018 - Fræðslunefnd

Farið yfir áherslur í fræðslumálum í fjárhagsáætlun fyrir árið 2018 með fræðslustjóra.
Vísað til áframhaldandi fjárhagsáætlunargerðar 2018.

Gestir

Fræðslustjóri ásamt fjármálastjóra. - 11:30

13.

1709020 - Fjárhagsheimildir í fjárhagsáætlun 2018 - Eigna,skipulags og umhverfisnefnd

Farið yfir áherslur í rekstri málaflokka er heyra undir eigna- skipulags- og umhverfisnefnd í fjárhagsáætlun fyrir árið 2018 með formanni nefndarinnar og sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs.
Vísað til áframhaldandi fjárhagsáætlunargerðar 2018.

Gestir

Formaður eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og sviðsstjóri framkvæmda- og umhverfissviðs ásamt fjármálastjóra. - 11:35

14.

1706013 - Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 2018 ásamt langtímaáætlun

Farið yfir áherslur í málefnum hafna í fjárhagsáætlun fyrir árið 2018 með framkvæmdastjóra hafna.
Vísað til áframhaldandi fjárhagsáætlunargerðar 2018.

Gestir

Framkvæmdastjóra hafna ásamt fjármálastjóra - 12:15

15.

1709012F - Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 186

Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 25. september lögð fram til kynningar.

16.

1709017F - Hafnarstjórn - 184

Fundargerð hafnarstjórnar frá 26. september s.l. lögð fram til kynningar.

17.

1709014F - Fræðslunefnd - 46

Fundargerð fræðslunefndar frá 27. september s.l. lögð fram til kynningar.

18.

1709013F - Íþrótta- og tómstundanefnd - 39

Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 21. september s.l. lögð fram til kynningar

19.

1709018F - Íþrótta- og tómstundanefnd - 40

Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 21. september s.l. lögð fram til kynningar.

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:00