mobile navigation trigger mobile search trigger
09.10.2017

537. fundur bæjarráðs

Bæjarráð - 537. fundur  

haldinn í Molanum fundarherbergi 3, 9. október 2017 og hófst hann kl. 08:30

Fundinn sátu Jón Björn Hákonarson varaformaður, Eydís Ásbjörnsdóttir aðalmaður, Hulda Sigrún Guðmundsdóttir varamaður, Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri og Gunnar Jónsson embættismaður er ritaði fundargerð.
Samkomulag er meðal framboða þar sem þrír fulltrúar Sjálfstæðisflokksins eru fjarverandi að varafulltrúi Framsóknarflokks Hulda Sigrún Guðmundsdóttir sitji þennan fund bæjarráðs. 

Dagskrá: 

1.

1611029 - Viðbygging við leikskólann Lyngholt

Bæjarráð fól á fundi sínum 2. október sl. fræðslustjóra og sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs, að leggja fyrir bæjarráð útfærða valkosti í húsnæðismálum Leikskólans Lyngholts vegna fjölgunar á leikskólarýmum til að bregðast við þörf vegna fjölgunar barna á leikskólaaldri á Reyðarfirði.
Tveir kostir voru skoðaðir sérstaklega, laus kennslustofa yrði sett upp við Leikskólann Lyngholt eða að félagsheimilið Félgaslundur yrði nýtt undir starfsemina. Mat fræðslustjóra er að skoða nánar útfærslur á nýtingu Félagslundar.
Bæjarráð felur sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs og fræðslustjóra að leggja fram kostnaðaráætlun vegna endurbóta á Félagslundi og leggja fyrir bæjarráð að nýju.

Gestir

Fræðslustjóri og sviðsstjóri framkvæmda- og umhverfissviðs. - 08:30

2.

1709185 - Ósk um kaup á Veturhúsum

Frá fundi bæjarráðs 2.október 2017 þar sem framlagt var bréf Péturs Karls Kristinssonar þar sem óskað er eftir kaupum á hlut Fjarðabyggðar í Veturhúsum ehf. Bæjarráð samþykkti að hlutur Fjarðabyggðar verði seldur og fól bæjarritara að vinna málið áfram og leggja fyrir bæjarráð að nýju.

Bæjarráð samþykkir að hlutur Fjarðabyggðar í félaginu verði seldur og vísar sölunni til staðfestingar bæjarstjórnar.

3.

1710031 - Ársreikningur 2016 - Veturhús

Framlagður til kynningar ársreikningur Veturhúsa ehf. fyrir árið 2016.

4.

1709152 - Dragnótaveiðar innan fjarða

Framlagður tölvupóstur Daða Benediktssonar vegna dragnótaveiða innan fjarða sveitarfélagsins. Bæjarráð getur að mörgu leyti tekið undir áhyggjur bréfritara og óskar eftir umsögn Hafrannsóknastofnunar um málið.

5.

1710034 - Beiðni um félags aðstöðu fyrir vélhjólaklúbb í Fjarðabyggð

Framlagt erindi frá Dreka vélhjólaklúbbi Austurlands, en klúbburinn leitar að húsnæði fyrir starfsemi klúbbsins þar sem aðstöðuleysi hamlar vexti hans.

Bæjarráð hefur ekki til umráða húsnæði sem hentar til starfsemi klúbbsins en bendir á að fjölmörg félagsamtök og einkaaðilar hafa til umráða húsnæði sem gæti hentað starfsemi hans.

6.

1701082 - Kæra um bindandi álit

Málefnið rætt.  Vísað til áframhaldandi vinnslu fjármálastjóra.

Gestir

Fjármálastjóri - 09:30

7.

1703205 - Húsnæðisáætlun fyrir allt Austurland

Framlagðar fundargerðir 1., 2., 3. og 4. fundar starfshóps um gerð sameiginlegrar húsnæðisáætlunar fyrir Austurland.
Umræða tekin um stöðu mála. Vísað til kynningar í félagsmálanefnd og eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

8.

1710040 - Húsnæðisþing 2017

Framlagt boð á húsnæðisþing 2017 sem haldið verður 16. október nk.
Fulltrúi sveitarfélagsins mun mæta á þingið.

9.

1710039 - Eistnaflug 2018

Fyrir liggur að forráðamenn Eistnaflugs hafa verið í samskiptum við sveitarfélagið vegna fjárhagslegar endurskipulagningar félagsins sem stendur að baki hátíðinni.
Bæjarráð samþykkir að styrkja Eistnaflug um 1 millj. kr. árið 2018 með því skilyrði að fjárhagslegri endurskipulagningu sé lokið og að hátíðin fari fram í Neskaupstað sumarið 2018.

10.

1710025 - Innviðir á Íslandi - ástand og framtíðarhorfur

Framlögð til kynningar skýrsla um ástand innviða á Íslandi sem útgefin er af Samtökum iðnaðarins.
Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.

11.

1709029 - Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2018 - Menningar- og safnanefnd

Farið yfir áherslur í menningarmálum í fjárhagsáætlun fyrir árið 2018.
Vísað til áframhaldandi fjárhagsáætlunarvinnu.

Gestir

Formaður menningar- og safnanefndar (í símasambandi) og bæjarritari, ásamt fjármálastjóra - 10:00

12.

1709059 - Fjárheimild í fjárhagsáætlun 2018 - Slökkvilið

Farið yfir áherslur í brunamálum og almannavörnum í fjárhagsáætlun fyrir árið 2018.  Vísað til áframhaldandi fjárhagsáætlunarvinnu.

Gestir

Fjármálastjóri - 09:50

13.

1709025 - Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2018 - Bæjarráð

Farið yfir áherslur í sameiginlegum kostnaði og atvinnumálum í fjárhagsáætlun fyrir árið 2018.  Vísað til áframhaldandi fjárhagsáætlunarvinnu.

Gestir

Fjármálastjóri ásamt bæjarritara - 10:35

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:30.