Bæjarráð - 540. fundur
haldinn í Molanum fundarherbergi 3, 30. október 2017 og hófst hann kl. 09:00
Fundinn sátu Jens Garðar Helgason formaður, Jón Björn Hákonarson varaformaður, Einar Már Sigurðarson varamaður, Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri og Gunnar Jónsson embættismaður er jafnframt ritaði fundargerð.
Dagskrá:
1. |
1705194 - Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2018 |
|
Lögð fram tillaga að fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana, auk tillögu að starfsáætlun fyrir árið 2018. Bæjarstjóri fór yfir helstu stærðir í tillögum. Bæjarráð vísar tillögu að fjárhagsáætlun og starfsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2018, til fyrri umræðu í bæjarstjórn. Fjárhagsáætlun er trúnaðarmál fram að bæjarstjórnarfundi. |
||
Gestir |
||
Fjármálastjóri - 09:00 |
||
2. |
1710159 - Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2019 - 2021 |
|
Lögð fram tillaga að þriggja ára fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árin 2019 - 2021. Bæjarstjóri fór yfir helstu stærðir í tillögum. Bæjarráð vísar tillögu að þriggja ára fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árin 2019 - 2021, til fyrri umræðu í bæjarstjórn. Fjárhagsáætlun er trúnaðarmál fram að bæjarstjórnarfundi. |
||
Gestir |
||
Fjármálastjóri - 09:40 |
||
3. |
1709219 - Gjaldskrá Rafveitu Reyðarfjarðar sala 2018 |
|
Lagt fram minnisblað vegna verðbreytinga á veitusviði. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt að sölugjaldskrá Rafveitu Reyðarfjarðar hækki um 2% frá 1.nóvember. Óskað er staðfestingar bæjarráðs. Bæjarráð staðfestir tillögu í minnisblað um verðbreytingu á sölugjaldskrá Rafveitu Reyðarfjarðar. |
||
Gestir |
||
Fjármálastjóri - 09:50 |
||
4. |
1710135 - Viðaukasamningar við samning vegna Tónlistarmiðstöðvar Austurlands |
|
Lagður fram til samþykktar viðaukasamningur vegna Tónlistarmiðstöðvar Austurlands. Fjárhæð samnings nemur kr. 1.450.000.- Einnig lagðir fram til kynningar sambærilegir samningar við Skaftfell og Sláturhúsið. |
||
5. |
1710112 - Meet the Locals samstarfsamningur 2018 - 2019 |
|
Fram lögð drög að samstarfssamningi við Tanna Travel um klasaverkefnið Meet the Locals fyrir árið 2018. Samningur gerir ráð fyrir 30.000 kr. framlagi. |
||
6. |
1706125 - Erindi frá Breiðdalshreppi - sameiningarmál |
|
Áframhald umræðu um erindi Breiðdalshrepps frá 20. október s.l. |
||
7. |
1709077 - Allt að 21.000 tonna framleiðsla á laxi í Berufirði og Fáskrúðsfirði - beiðni um umsögn |
|
Erindi frá Skipulagsstofnun dags. 28. september þar sem óskað er eftir umsögn um frummatsskýrslu fyrir 21.000 tonna eldi í Berufirði og Fáskrúðsfirði. Fyrir síðasta fundi hafnarstjórnar lá vinnuskjal sem farið var yfir og gerðar á lagfæringar. Hafnarstjórn vísaði skjali til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og bæjarráðs til umfjöllunar. Bæjarráð fór yfir umsögnina og felur bæjarstjóra að ljúka henni og senda inn til Skipulagsstofnunar. |
||
Gestir |
||
Framkvæmdastjóri Fjarðabyggðahafna - 11:00 |
||
8. |
1710148 - Styrkbeiðni fyrir Ungt Austurland |
|
Beiðni Ungs Austurlands um styrk til að halda stjórnmálaskóla. |
||
9. |
1710151 - Móttaka flóttamanna á árinu 2018 |
|
Velferðarráðuneytið undirbýr komu flóttafólks í samræmi við samþykkt ríkisstjórnarinnar frá því í lok sumars. Flóttamannanefnd hefur lagt til við félags- og jafnréttismálaráðherra að óska eftir viðræðum við Fjarðabyggð um mótttöku á arabískumælandi kvótaflóttafólki sem staðsett er í Jórdaníu. |
||
10. |
1710158 - Vinna sjálfboðaliða |
|
Bréf Afls er varðar vinnu sjálfboðaliða í Fjarðabyggð fram lagt. |
||
11. |
1406124 - Nefndaskipan Sjálfstæðisflokks 2014 - 2018 |
|
Valdimar O Hermannsson hefur óskað eftir leyfi frá störfum í bæjarstjórn og nefndum vegna starfa utan sveitarfélagsins. |
||
12. |
1710013F - Hafnarstjórn - 186 |
|
Fundargerð hafnarstjórnar frá 24. október sl. lögð fram til kynningar. |
||
13. |
1710014F - Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 189 |
|
Framlögð til kynningar fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 26. október sl. |
||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:30.