87. fundur félagsmálanefndar
haldinn í Molanum fundarherbergi 1, þriðjudaginn 20. september 2016 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu:
Hulda Sigrún Guðmundsdóttir formaður, Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir aðalmaður, Ásmundur Páll Hjaltason aðalmaður, Valdimar O Hermannsson varaformaður, Heiðar Már Antonsson varamaður, Inga Rún Sigfúsdóttir embættismaður, Helga Elísabet Guðlaugsdóttir Beck og Þóroddur Helgason embættismaður.
Fundargerð ritaði: Þóroddur Helgason
Dagskrá:
1. |
1609125 - Málefni Breiðabliks |
|
Til umræðu voru málefni Breiðabliks. Deildarstjóri búsetuþjónustu gerði grein fyrir þjónustunni sem þar er veitt og einnig þjónustuþörf. |
||
|
||
2. |
1608073 - Rekstur hjúkrunarheimilisins Hulduhlíðar |
|
Fyrir liggur minnisblað fjármálastjóra Fjarðabyggðar þar sem gerð er grein fyrir fjárhagsstöðu hjúkrunarheimilisins Hulduhlíðar. Einnig var gerð grein fyrir samskiptum forstöðumanns hjúkrunarheimilanna í Fjarðabyggð og bæjarstjóra við heilbrigðisráðherra þar sem leitað var lausna við rekstrarvanda hjúkrunarheimilisins Hulduhlíðar, m.a. með því að koma upp tveimur hvíldarinnlagnarýmum á Hulduhlíð. Félagsmálanefnd tekur undir óskir um að veitt verði leyfi til að koma upp þessum tveimur hvíldarinnlagnarrýmum. Nefndin samþykkir einnig heimild til handa forstöðumanni hjúkrunarheimilanna í Fjarðabyggð að taka skammtímalán/yfirdráttarheimild hjá viðskiptabanka Hulduhlíðar upp á 10 milljónir króna til allt að 12 mánaða svo hægt verði að bregðast við þeim bráðavanda sem að steðjar. |
||
|
||
3. |
1609135 - Framkvæmdaráð hjúkrunarheimila í Fjarðabyggð |
|
Félagsmálanefnd, sem starfandi stjórn hjúkrunarheimilanna í Fjarðabyggð, samþykkir að stofna þriggja manna framkvæmdaráð yfir hjúkrunarheimilin í Fjarðabyggð. Nefndin felur Huldu Sigrúnu Guðmundsdóttur, Valdimar O. Hermannssyni og Hjördísi Helgu Seljan Þóroddsdóttur að sitja í framkvæmdaráði. |
||
|
||
4. |
1109095 - Jafnréttisáætlun í Fjarðabyggð 2013 - 2016 |
|
Farið var yfir jafnréttisáætlun Fjarðabyggðar 2013-2016. Ákveðið var að endurskoða áætlunina til næstu þriggja ára með áherslu á aukna fræðslu og þátttöku ungs fólks. Ákveðið er að ljúka endurskoðun á árinu 2016. |
||
|
||
5. |
1605024 - Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2017 |
|
Fræðslustjóri gerð grein fyrir þeirri vinnu sem fram hefur farið við gerð launa- og fjárhagsáætlunar fyrir árið 2017. |
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:55