93. fundur félagsmálanefndar
haldinn í Molanum fundarherbergi 1 og 2, 21. mars 2017 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu Hulda Sigrún Guðmundsdóttir Formaður, Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir Aðalmaður, Borghildur Hlíf Stefánsdóttir Aðalmaður, Ásmundur Páll Hjaltason Aðalmaður, Valdimar O Hermannsson Varaformaður og Inga Rún Sigfúsdóttir Embættismaður.
Fundargerð ritaði Inga Rún Sigfúsdóttir.
Dagskrá:
1. |
1406154 - Málefni flóttafólks 2015 |
|
Yfirfélagsráðgjafi gerði grein fyrir móttöku flóttafólks til Fjarðabyggðar. Verkefnið hefur að hans mati gengið vel og margir lagt hönd á plóg við að gera móttökuna sem ánægjulegasta. Félagsmálanefnd lýsir ánægju sinni með framgang verkefnisins. |
||
2. |
1611121 - Vinna við forvarnir fyrir árið 2017 |
|
Fyrir liggur áætlun fjölskyldusviðs um forvarnarfundi á árinu 2017. í áætluninni er gert ráð fyrir fimm stærri fundum en tekið skal fram að fjölmörg önnur forvarnarverkefni eru í gangi í stofnunum sveitarfélagsins og hjá félögum sem njóta styrkja frá sveitarfélaginu. Félagsmálanefnd lýsir ánægju með áætlunina sem er í takt við fjölskyldustefnuna og nýgert samkomulag um þróunarverkefnið Heilsueflandi samfélag. |
||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl.17:10.