mobile navigation trigger mobile search trigger
22.08.2017

97. fundur félagsmálanefndar

Félagsmálanefnd - 97. fundur  

haldinn í Molanum fundarherbergi 1 og 2,

22. ágúst 2017 og hófst hann kl. 16:00

Fundinn sátu Hulda Sigrún Guðmundsdóttir Formaður, Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir Aðalmaður, Borghildur Hlíf Stefánsdóttir Aðalmaður, Ásmundur Páll Hjaltason Aðalmaður, Valdimar O Hermannsson Varaformaður, og Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir Embættismaður.

Fundargerð ritaði Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir félagsmálastjóri.

Dagskrá: 

1.

1708075 - Samningur um félagsstarf aldraðra

Framlögð drög að þjónustusamningi á milli Fjarðabyggðar og Félags eldri borgara á Stöðvarfirði um að félagið taki að sér að tryggja öldruðum á Stöðvarfirði aðgang að félags- og tómstundastarfi við þeirra hæfi sbr. ákvæði í 40. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga. Félagsmálanefnd hefur fjallað um samninginn og vísar honum til staðfestingar bæjarráðs.

2.

1706096 - Áskorun frá stýrihóp um Heilsueflandi Samfélag í Fjarðabyggð

Félagsmálanefnd mun halda gildum heilsueflandi samfélags á lofti í fyrirliggjandi vinnu við fjárhagsáætlun.

3.

1708098 - Fjárhagsaðstoð

4.

1705194 - Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2018

Félagsmálanefnd ræddi undirbúning launa- og fjárhagsáætlunar félagsþjónustu árið 2018 og mun skoða áherslur á milli funda.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00.