Fjarðabyggð óskar eftir tilboði í klæðningar og gluggaskipti á Egilsbúð í Neskaupstað.
06.04.2016
Klæðning og gluggaskipti í Egilsbúð
Hér er um opið útboð að ræða og er það því almennt útboð, þ.e. útboð þegar ótilteknum fjölda er með auglýsingu gefinn kostur á að gera tilboð eins og lýst er í grein 2.2 í ÍST 30.
Útboðsgögn eru afhent rafrænt í tölvupósti.
Óska skal eftir gögnum á netfanginu bodvar.bjarnason@efla.is.
Nánari upplýsingar gefur Böðvar Bjarnason hjá Eflu Egilsstöðum í síma 665 6521.
Helstu magntölur eru eftirfarandi:
- Klæðning veggja 904 m2.
- Einangrun 50mm 904 m2.
- Hattar á þakkant 196 m.
- Áfellur við sökkul með músaneti 152 m.
- Áfellur með gluggum 300 m.
- Vatnsbretti 105 m.
- Endurnýjun niðurfallsröra 40 m.
- Endurnýjun á gluggum 93 stk.
Útboðsyfirlit:
Afhending útboðsgagna 6. apríl 2016.
Opnun tilboða þriðjudaginn 19. apríl 2016, kl. 14:00.
Opnunarstaður tilboða Skrifstofa Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, Reyðarrði.
Verkbyrjun strax að lokinni undirskrift verksamnings.
Verklok 15. maí 2017.