Fjarðabyggð óskar eftir tilboðum í eftirfarandi útboðsverk:
Leikskóli Neskaupstað - lóðar- og umhverfisfrágangur ásamt bílastæðum og endurbótum á Eyrargötu.
Verkið felst í gerð leikskólalóðar við nýjan leikskóla í Neskaupstað, ásamt bílastæðum og gatnagerð við Eyrargötu ásamt gangstéttum.
Verktaki skal sjá um allan yfirborðsfrágang leikskólalóðar þar með er talið gröftur og brottakstur á efni, tilflutningur á efni innan lóðar, grúsarfylling undir stíga og bílastæði, ásamt því að gera götu, bílastæði, stíga og gangstéttir tilbúnar fyrir malbikun.
Verktaki skal grafa fyrir lögnum, leggja fráveitu, rafstrengi, leggja ídráttarrör, setja upp ljósastólpa og tengja lagnabúnað. Verktaki skal sjá um að útvega og setja upp stálrimlagirðingu við leikskólalóð. Einnig skal smíða girðingar og timburpalla ásamt því að steypa stéttir, helluleggja, þökuleggja og gróðursetja.
Helstu magntölur eru:
- Grúsarfylling 900m2
- Jöfnunarlag undir malbik 3.000m2
- Steyptar stéttar 470m2
- Hellulagnir 850m2
- Kantsteinslögn 170m2
- Þökulögn 3.300m2
- Gerð gróðurbeða 500m2
- Timburdekk 60m2
- Girðingar 260m
Verklok eru 30. 07. 2016.
Útboðsgögn verða afhent á geisladiski án endurgjalds á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, Reyðarfirði frá og með föstudeginum 20. nóvember nk.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu framkvæmdasviðs Fjarðabyggðar, fimmtudaginn 3. des, kl. 14:00.