mobile navigation trigger mobile search trigger
16.06.2015

Norðfjörður - Tunna á garðsenda

Hafnasjóður Fjarðabyggðar óskar eftir tilboðum í ofangreint verk.
Helstu verkþættir og magntölur eru:

1) Upptekt og endurröðun grjóti af garðsenda um 770m³.
2) Staurarekstur 56 staurar.
3) Uppsetning á gjörðum, stögum og fender
4) Grjótfylla tunnu um 900m³

Verkinu skal lokið eigi síðar en 31. oktober 2015.

Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttöku) og á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar frá og með mánudaginn 22. júni 2015. Verð útboðsgagna er 5.000 kr.

Tilboðin skulu berast á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Reyðarfirði eigi síðar en miðvikudaginn 8. júli 2015, kl 14:00 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.