22.04.2015
Tilboð opnuð vegna ofanflóðavarna Eskifirði
Framkvæmdasýsla ríkisins bauð út f.h. Ofanflóðasjóðs og Fjarðabyggðar verkið Ofanflóðavarnir á Eskifirði - Hlíðarendaá, varnarvirki.
Gefinn var fyrirspurnarfrestur til 15. apríl og svarfrestur til 17. apríl sl.
Tilboð í verkið voru opnuð 22. apríl 2015. Tvö tilboð bárust.
Þ.S. verktakar ehf. buðu kr. 79.500.055, sem samsvarar 105% af kostnaðaráætlun.
Hérðaverk ehf. buðu kr. 69. 471.639, sem samsvarar 92% af kostnaðaráætlun.
Verkkaupar eru Ofanflóðasjóður og Fjarðabyggð. Umsjón og eftirlit annast Framkvæmdasýsla ríkisins.
Verkinu á að vera lokið 30. nóvember nk.