Fjarðabyggð óskar eftir tillögum frá áhugasömum rekstraraðila til að sjá um rekstur skíðasvæðisins í Oddsskarði með það að markmiði að efla skíðaiðkun og auka aðsókn að svæðinu, í þágu íbúa, íþróttaiðkenda og ferðaþjónustuaðila.
Rekstur svæðisins er boðinn út til allt að sex ára. Um er að ræða rekstur á skíðasvæði Fjarðabyggðar í Oddsskarði, lyftum og búnaði og öllum þeim tækjum sem tilheyra rekstrinum auk reksturs skíðaskála og veitingasölu.
Stuðst er við samningskaupalýsingu og skulu umsækjendur skila tillögum sínum í formi greinargerðar þar sem fram komi umbeðnar upplýsingar skv. samningskaupalýsingunni.
Tillögum umsækjanda skal skilað í afgreiðslu Fjarðabyggðar Hafnargötu 2 730 Fjarðabyggð eigi síðar en 15. ágúst 2015. Öll gögn skulu greinilega merkt „Skíðasvæðið 2015”. Farið verður með aðsendar upplýsingar sem trúnaðarmál.
Fjarðabyggð áskilur sér rétt til að taka hvaða tillögu sem er eða hafna öllum.
Tengiliður verkkaupa vegna þessara samningskaupa er Guðmundur Halldórsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi, í samvinnu við bæjarstjóra og fjármálastjóra.
Guðmundur veitir nánari upplýsingar á netfanginu gudmundur.halldorsson@fjardabyggd.is eða i síma 470 9000.
Útboðsgögn: