mobile navigation trigger mobile search trigger

Persónuverndarfulltrúi Fjarðabyggðar

Samkvæmt lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018 hefur Fjarðabyggða tilnefnt persónuverndarfulltrúa. Gísli Marinó Auðbergsson annast starf persónuverndarfulltrúa skv. 35. grein laganna.

Hlutverk persónuverndarfulltrúa er að upplýsa viðkomandi stofnun eða fyrirtæki og starfsmenn þeirra um skyldur samkvæmt persónuverndarlögum, skipuleggja fræðslu starfsfólks, gera úttektir, veita ráðgjöf og vera til staðar komi upp álitaefni á sviði persónuverndar.

Persónuverndarfulltrúi tekur jafnframt á móti fyrirspurnum og beiðnum frá þeim einstaklingum sem verið er að vinna með upplýsingar um. Persónuverndarfulltrúinn er einnig tengiliður við Persónuvernd og vinnur með henni ásamt því að fylgjast með því að farið sé að persónuverndarlögum.

Einstaklingar sem óska upplýsinga um vinnslu persónugagna hjá Fjarðabyggð sem eða upplýsingar um það hvernig þeir geta leitað réttar síns samkvæmt ákvæðum lagana, geta beint erindum sínum til persónuverndarfulltrúa með því að senda tölvupóst á personuverndarfulltrui@fjardabyggd.is eða fengið samband í síma 476 1616.