Leikskólinn Dalborg auglýsir eftir tveimur leikskólakennurum til starfa.
Leikskólinn er fjögurra deilda leikskóli fyrir börn frá eins árs aldri. Við erum skóli á grænni grein og vinnum eftir uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar.
Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Um er að ræða 100% starf.
Menntun, reynsla og hæfniskröfur:
Leikskólakennaramenntun áskilin
Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
Frumkvæði og faglegur metnaður
Hæfni og áhugi á að vinna í hóp
Reynsla af starfi með börnum
Ábyrgð og stundvísi
Góð íslenskukunnátta
Ef ekki fæst leikskólakennari til starfa kemur til greina að ráða starfsfólk með aðra menntun og reynslu.
Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um.
Umsóknarfrestur er til 10.október
Nánari upplýsingar gefur Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, leikskólastjóri í síma 476-1341 eða á thordismb@skolar.fjardabyggd.is og einnig Helena Rós Rúnarsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri í síma 476-1341 eða á helena@skolar.fjardabyggd.is
Umsókn og ferilskrá skal senda rafrænt á http://dalborg.leikskolinn.is/Upplysingar/Starfsumsokn