mobile navigation trigger mobile search trigger
08.06.2017

Íþróttamiðstöð Norðfjarðar - Kvenkyns starfsmaður

Laust er til umsóknar 100% staða kvenkyns starfsmanns við Íþróttamiðstöð Norðfjarðar. Um vaktastarf er að ræða.
Starfið er laust frá og með 21. ágúst.

Um framtíðarstarf er að ræða. 

Í starfinu felst m.a.:

  • Öryggisvarsla við sundlaug og sundlaugarsvæði
  • Baðvarsla í kvennaklefum
  • Afgreiðsla og önnur þjónusta við börn og aðra gesti
  • Þrif

Hæfniskröfur:

  • Góð samskiptahæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Hreint sakavottorð

Laun eru samkvæmt samningum launanefndar sveitafélaga og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til 20. júlí nk.

Frekari upplýsingar um starfið gefur Sigurjón Egilsson, forstöðumaður Norðfjarðar í síma 863 7080 og á netfanginu sigurjon.egilsson@fjardabyggd.is

Sótt er um starfið rafrænt á Íbúagátt Fjarðabyggðar.