mobile navigation trigger mobile search trigger
09.03.2018

Leikskólakennarar við leikskólann Eyrarvelli í Neskaupstað

Leikskólinn Eyrarvellir auglýsir eftir leikskólakennurum eða starfsfólki með sambærilega menntun.
Leikskólinn er átta deilda leikskóli fyrir börn frá eins árs aldri. Við erum skóli á grænni grein og vinnum eftir uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og ART
Umsækjandi þarf að geta hafið störf 1. ágúst. Um er að ræða 100% starf

Menntun, reynsla og hæfniskröfur:
• Leikskólakennaramenntun áskilin
• Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
• Frumkvæði og faglegur metnaður
• Hæfni og áhugi á að vinna í hóp
• Reynsla af starfi með börnum
• Ábyrgð og stundvísi
• Góð íslenskukunnátta
Ef ekki fæst leikskólakennari til starfa kemur til greina að ráða starfsfólk með aðra menntun og reynslu.
Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um.

Umsóknarfrestru er til 8. apríl nk.

Nánari upplýsingar gefur Halla Höskuldsdóttir, leikskólastjóri í síma 4771460/8478232 eða í gegnum netfangið halla@skolar.fjardabyggd.is

Sótt er um starfið á ráðningarvef Fjarðabyggðar