mobile navigation trigger mobile search trigger
27.11.2017

Neskaupstaður - Starfsmaður í félagslegri heimaþjónustu og Breiðablik

Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar auglýsir eftir starfsmanni í til að sinna félagslegri heimaþjónustu í Neskaupstað og helgarvöktum í Breiðabliki

 Um er að ræða 90% starfshlutfall frá 1. janúar 2018. Að auki er unnið aðra hvora helgi í þjónustuíbúðum í Breiðabliki og er það greitt í yfirvinnu.

Starfsmaður félagslegrar heimaþjónustu veitir félagslegan stuðning og persónulega aðstoð við notanda samkvæmt þjónustusamningi með það að markmiði að hann geti búið á eigin heimili við öryggi og sem bestar aðstæður. Í starfinu felst einnig aðstoð við öll almenn heimilisstörf sem notandi getur ekki annast sjálfur.

Umsækjendur þurfa að vera samviskusamir, heiðarlegir, stundvísir, með þjónustulund og  hæfni í mannlegum samskiptum. Íslenskukunnátta er mikilvæg sem og grunnþekking á heimilisstörfum. Gerð er krafa um hreint sakavottorð. Afnot af bíl og bílpróf er æskilegt en ekki skilyrði.

Umsóknarfrestur er til 20. desember 2017.

Nánari upplýsingar veitir Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir félagsmálastjóri í síma 470-9000 eða netfanginu helga.gudlaugsdottir@fjardabyggd.is

Nánar um starfsumsóknir hjá Fjarðabyggð

Sótt er um starfið á ráðningarvef Fjarðabyggðar með því að smella hér: Starfsmaður í félagslegri heimaþjónustu og Breiðablik