Vegna forfalla eru lausar til umsóknar tvær stöður umsjónakennara við Nesskóla næstu þrjá mánuði. Um er að ræða kennslu á yngsta- og miðstigi.
Við Nesskóla stunda um 215 nemendur nám.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla skilyrði.
- Reynsla af kennslu æskileg.
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
- Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum.
- Góðir skipulagshæfileikar.
- Ábyrgð og stundvísi
Laun eru samkvæmt kjarasamningi sveitarfélaga og KÍ.Umsjónarkennari í Nesskóla
Umsóknarfrestur er til og með 13. desember 2017.
Umsækjendur af báðum kynjum eru hvattir til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar veitir Einar Már Sigurðarson, skólastjóri í síma 477 1124/8631739 eða á netfanginu ems@skolar.fjardabyggd.is.
Sótt er um starfið á ráðningarvef Fjarðabyggðar með því að smella hér: Umsjónakennari í Nesskóla