mobile navigation trigger mobile search trigger
14.03.2017

Starfsmaður í þjónustu- og framkvæmdamiðstöð

Fjarðabyggð óskar eftir að ráða starfsmann við Þjónustu- og framkvæmdamiðstöð Fjarðabyggðar í 100% starf á starfsstöð í Neskaupstað.

Starfsvið:

  • Almenn þjónustustörf og viðhald gatna.
  • Smáviðhald og lagfæringar bíla og tækja.
  • Aðstoð við ýmsar verklegar viðhalds og nýframkvæmdir.
  • Önnur tilfallandi störf í Þjónustu- og framkvæmdamiðstöð Fjarðabyggðar.

Menntun og hæfni:

  • Iðnmenntun svo sem nám í bifvéla- eða vélavirkjun eða annað sambærilegt nám er kostur
  • Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
  • Frumkvæði og drifkraftur
  • Snyrtimennska
  • Jákvæðni og ábyrgðarkennd
  • Góðir samskipta- og skipulagshæfileikar
  • Vinnuvélaréttindi eru kostur
  • Meirapróf er kostur

Umsóknarfrestur er til og með 3. apríl 2017.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Upplýsingar um starfið veitir: Sigurður Jóhannes Jónsson í síma 470 9000 eða sigurdur.j.jonsson@fjardabyggd.is

Sótt er um starfið í Íbúagátt Fjarðabyggðar.