Starf sumarstarfsmanns á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar
Starfsmaður vinnur að margþættum verkefnum á stjórnsýslu- og þjónustusviði vegna afleysinga. Starfið er fjölbreytt og margþætt. Ráðið er í starfið í 3 mánuði en æskilegt að viðkomandi geti hafið störf í byrjun júní
Helstu verkefni:
- Símsvörun og þjónusta í afgreiðslu skrifstofu við viðskiptavini og aðra starfsmenn
- Móttaka erinda, flokkun og skráning
- Móttaka gesta og viðburðastjórnun
- Vinna við upplýsinga- og kynningarstörf
Kröfur til umsækjanda:
- Stúdentspróf og æskilegt að við komandi hafi viðbótarmenntun
- Góð almennt tölvukunnátta
- Góð tungumálakunnátta og hæfni til að miðla upplýsingum í töluðu og rituðu máli
- Sjálfstæði, frumkvæði og skipulagshæfni.
- Hæfni í mannlegum samskiptum
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum LN við viðkomandi stéttarfélag.
Konur jafnt sem karlar eru hvattar til að sækja um stöðuna.
Allar frekari upplýsingar veitir Gunnar Jónsson bæjarritari, í síma 470 - 9062.
Umsóknarfrestur er til og með 31. mars 2017.