SUNDLAUG StöðvarFJARÐAR - SUMARSTARF
Laus eru til umsóknar staða við Sundlaug Stöðvarfjarðar. Um sumarstarf er að ræða, frá miðjum júní fram í miðjan ágúst, ráðin verður kona í starfið.
Í starfinu felst m.a.:
- Öryggisvarsla við sundlaug og sundlaugarsvæði
- Baðvarsla í klefum
- Afgreiðsla og önnur þjónusta við gesti
- Þrif
Hæfniskröfur:
- Standast hæfnispróf sundstaða.
- Góð tungumálakunnátta í íslensku og ensku.
- Góð samskiptahæfni.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Hreint sakavottorð.
Laun eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 31. mars 2017.
Frekari upplýsingar um starfið gefur Oddur Sigurðsson, forstöðumaður Íþróttamiðstöðvar Stöðvarfjarðar í síma: 897 8921 og netfang: itn.stod@fjardabyggd.is