mobile navigation trigger mobile search trigger
05.05.2017

Umsjónarkennari í Grunnskólann á Eskifirði

Staða umsjónarkennara við Grunnskólann á Eskifirði er laus til umsóknar.

Starfshlutfall er 100%. Um er að ræða umsjón á miðstigi eða elsta stigi ásamt almennri bekkjarkennslu.

Leitað er að kennara sem er reiðubúinn að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks sem innir af hendi skemmtileg og krefjandi störf með nemendum skólans.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu á grunnskólastigi, starfsreynsla er æskileg.
  • Góð hæfni til samskipta og samstarfs.
  • Frumkvæði og faglegur metnaður.
  • Ábyrgð í starfi og stundvísi.
  • Skipulagshæfileikar.

Við skólann starfar samhentur hópur starfsfólks sem leggur metnað í góð samskipti og því gerum við kröfu til starfsmanna að þeir búi að ríkulegri samskiptahæfni.

Laun eru samkvæmt kjarasamningum KÍ og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Umsóknarfrestur er til 6. júní 2017.

Upplýsingar veita Hilmar Sigurjónsson skólastjóri hilmar@skolar.fjardabyggd.is og / eða Friðrik Þorvaldsson aðstoðarskólastjóri frissi@skolar.fjardabyggd.is  eða í síma 476-1355.

Sótt er um starfið rafrænt á Íbúagátt Fjarðabyggðar.